Fotbolti.net
05.09.26 - 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

„Algjör stríðsmaður" framlengir í Eyjum

„Algjör stríðsmaður" framlengir í Eyjum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Milan Tomic hefur framlengt samning sinn við ÍBV. Tomic gekk til liðs við félagið fyrir síðasta tímabil. Hann kom við sögu í 20 leikjum í deildinni í fyrra og hefur spilað 17 leiki í sumar.
Tilkynning ÍBV

Milan er algjör stríðsmaður inni á vellinum. Hann kemur með ótrúlega orku, baráttu og karakter í hvert einasta verkefni og gefst aldrei upp.

En það sem gerir Milan sérstaklega mikilvægan fyrir okkur er ekki bara það sem hann gerir inni á vellinum. Hann er topp karakter utan vallar, alltaf boðinn og búinn að leggja sitt af mörkum og stendur svo sannarlega fyrir þau gildi sem ÍBV vill standa fyrir.

Við erum stolt og þakklát að hafa Milan áfram með okkur og hlökkum til að sjá hann berjast fyrir félagið á komandi árum.
ÍBV alltaf, alls staðar!


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.