05.09.26 - 13:48
Brynjar Ingi Erluson
Championship: Andri Lucas og félagar án sigurs í síðustu þremur leikjum

Andri Lucas og félagar töpuðu gegn Preston

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Andri Lucas og félagar töpuðu gegn Preston

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Andri Lucas Guðjohnsen og félagar hans í Blackburn Rovers töpuðu fyrir Preston, 2-1, í ensku B-deildinni í dag.
Andri Lucas var að vanda í byrjunarliði Blackburn og var líflegur í sóknarleiknum. Hann bjó til nokkur færi fyrir liðsfélaga sína og átti sjálfur tvær tilraunir á markið.
Heimamenn í Preston nýttu færin sín hins vegar betur og Callum Lang skoraði tvívegis á fyrsta hálftímanum. Blackburn minnkaði muninn þegar fyrirgjöf Ryan Alebiosu fór af Stanley Mills og í eigið net.
Blackburn tókst ekki að jafna og varð að sætta sig við 2-1 tap. Liðið er í 14. sæti með fimm stig eftir fimm umferðir.
Stoke vann flottan 4-0 sigur á Charlton og komu öll mörkin í fyrri hálfleik. Justin Devenny skoraði tvö en Ethan Galbraith og George Hirst komust einnig á blað. Charlton lék manni færri stærstan hluta síðari hálfleiks eftir að Danny McNamara fékk rauða spjaldið.
Nýliðar Lincoln gerðu á sama tíma 1-1 jafntefli við Southampton. Welington kom gestunum yfir undir lok fyrri hálfleiks en Mikkel Ladefoged jafnaði fyrir heimamenn á 87. mínútu.
Í C-deildinni sat Benoný Breki Andrésson allan tímann á bekknum þegar Stockport County pakkaði Wigan saman á útivelli, 4-0. Stockport er í 3. sæti með níu stig eftir fimm umferðir.
Stoke City 4 - 0 Charlton Athletic
1-0 Justin Devenny ('15 , víti)
2-0 Ethan Galbraith ('22 )
3-0 George Hirst ('25 )
4-0 Justin Devenny ('41 )
Rautt spjald: Danny McNamara, Charlton Athletic ('50)
Preston NE 2 - 1 Blackburn
1-0 Callum Lang ('9 )
2-0 Callum Lang ('27 )
2-1 Stanley Mills ('51 , sjálfsmark)
Lincoln City 1 - 1 Southampton
0-1 Welington ('44 )
1-1 Mikkel Ladefoged ('87 )

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | QPR | 5 | +4 | 11 |
| 2 | Swansea | 4 | +6 | 10 |
| 3 | Charlton Athletic | 5 | -1 | 10 |
| 4 | Middlesbrough | 5 | +2 | 8 |
| 5 | West Ham | 5 | +2 | 8 |
| 6 | Bristol City | 5 | +1 | 8 |
| 7 | West Brom | 5 | +1 | 8 |
| 8 | Wolves | 4 | +3 | 7 |
| 9 | Millwall | 5 | -2 | 7 |
| 10 | Birmingham | 4 | +1 | 6 |
| 11 | Sheffield Utd | 5 | 0 | 6 |
| 12 | Watford | 5 | -1 | 6 |
| 13 | Norwich | 5 | -1 | 6 |
| 14 | Stoke City | 5 | -1 | 6 |
| 15 | Wrexham | 4 | +2 | 5 |
| 16 | Blackburn | 5 | -1 | 5 |
| 17 | Bolton | 5 | -1 | 5 |
| 18 | Lincoln City | 5 | -2 | 5 |
| 19 | Southampton | 5 | +5 | 4 |
| 20 | Cardiff City | 5 | -1 | 4 |
| 21 | Derby County | 5 | -3 | 4 |
| 22 | Portsmouth | 5 | -3 | 4 |
| 23 | Burnley | 5 | -5 | 3 |
| 24 | Preston NE | 5 | -5 | 3 |