05.09.26 - 16:44
Brynjar Ingi Erluson
Championship: West Ham að vakna til lífsins - Burnley á botninum

West Ham vann annan leikinn í röð

Mynd: EPA

Burnley er á botninum

Mynd: EPA

West Ham vann annan leikinn í röð

Mynd: EPA
West Ham vann annan leik sinn í röð í ensku B-deildinni í dag er liðið bar sigurorð af Derby County, 3-0, í Lundúnum.
Það tók West Ham smá tíma að komast í gang en liðið vann sinn fyrsta sigur á tímabilinu gegn Wolves í síðustu umferð.
Hamrarnir fylgdu honum eftir með öruggum 3-0 sigri í dag. Joel Piroe kom liðinu yfir snemma leiks áður en Edvin Austbo og Mohamadou Kante gerðu út um leikinn með mörkum undir lokin.
West Ham er í 8. sæti með átta stig eftir fimm leiki.
Burnley tapaði 2-1 fyrir Bristol City á Turf Moor þrátt fyrir að Aaron Ramsey hefði komið heimamönnum yfir á 56. mínútu. Gestirnir sneru leiknum við á lokakaflanum með mörkum frá Rob Dickie og Yu Hirakawa.
Bristol City hefur farið vel af stað og er í 4. sæti með tíu stig en Burnley situr á botninum með aðeins tvö stig.
Millwall vann 4-0 stórsigur á Bolton. Lyndon Dykes skoraði tvö mörk en Caleb Taylor og Camiel Neghli komust einnig á blað.
Það sauð upp úr undir lok leiks þegar Jenson Metcalfe hjá Millwall og Josh Sheehan hjá Bolton fengu báðir rauða spjaldið fyrir kýting.
Millwall, sem komst í umspilið á síðustu leiktíð, er í 7. sæti með níu stig en Bolton í því 21. með fjögur stig.
Burnley 1 - 2 Bristol City
1-0 Aaron Ramsey ('56 )
1-1 Rob Dickie ('82 )
1-2 Yu Hirakawa ('90 )
Millwall 4 - 0 Bolton
1-0 Caleb Taylor ('38 )
2-0 Lyndon Dykes ('83 )
3-0 Lyndon Dykes ('88 )
4-0 Camiel Neghli ('90 )
Rautt spjald: ,Jenson Metcalfe, Millwall ('86)Josh Sheehan, Bolton ('86)
Portsmouth 2 - 0 Cardiff City
1-0 Conor Shaughnessy ('31 )
2-0 Marko Milovanovic ('52 )
QPR 0 - 1 Middlesbrough
0-1 Will Lankshear ('20 )
Sheffield Utd 1 - 3 Norwich
0-1 Anthony Musaba ('8 )
1-1 Patrick Bamford ('23 )
1-2 Mohamed Toure ('44 )
1-3 Mathias Kvistgaarden ('62 )
West Brom 1 - 0 Watford
1-0 Jimmy-Jay Morgan ('36 )
West Ham 3 - 0 Derby County
1-0 Joel Piroe ('6 )
2-0 Edvin Austbo ('87 )
3-0 Mohamadou Kante ('90 )

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Swansea | 4 | +6 | 10 |
| 2 | QPR | 5 | +3 | 10 |
| 3 | Middlesbrough | 5 | +3 | 10 |
| 4 | Bristol City | 5 | +2 | 10 |
| 5 | West Brom | 5 | +2 | 10 |
| 6 | Charlton Athletic | 5 | -1 | 10 |
| 7 | Millwall | 5 | +2 | 9 |
| 8 | West Ham | 5 | +4 | 8 |
| 9 | Wolves | 4 | +3 | 7 |
| 10 | Birmingham | 4 | +1 | 6 |
| 11 | Norwich | 5 | 0 | 6 |
| 12 | Sheffield Utd | 5 | -1 | 6 |
| 13 | Portsmouth | 5 | -1 | 6 |
| 14 | Stoke City | 5 | -1 | 6 |
| 15 | Wrexham | 4 | +2 | 5 |
| 16 | Blackburn | 5 | -1 | 5 |
| 17 | Watford | 5 | -2 | 5 |
| 18 | Lincoln City | 5 | -2 | 5 |
| 19 | Southampton | 5 | +5 | 4 |
| 20 | Bolton | 5 | -5 | 4 |
| 21 | Derby County | 5 | -5 | 4 |
| 22 | Cardiff City | 5 | -3 | 3 |
| 23 | Preston NE | 5 | -5 | 3 |
| 24 | Burnley | 5 | -6 | 2 |