Fotbolti.net
05.09.26 - 19:52
Stefán Marteinn Ólafsson

Dagur Orri fékk tilboð erlendis frá: Bæði svekktur og ekki svekktur

Auglýsing
Dagur Orri Garðarsson skoraði og lagði upp í dag

Dagur Orri Garðarsson skoraði og lagði upp í dag

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur vann gríðarlega mikilvægan sigur á Keflavík í 22. umferð Bestu deild karla í dag. Valur þarf hins vegar að bíða til morgun til þess að vita hvort hann dugi til þess að koma þeim upp í efri hluta eða ekki.

Lestu um leikinn: Keflavík 1 - 2 Valur

„Frábært að halda þetta út og ná góðum útisigri hérna í Keflavík" sagði Dagur Orri Garðarsson framherji Vals eftir sigurinn í dag.

„Mér fannst við byrja miklu betur, þeir áttu ekki breik í okkur í fyrri hálfleik og við vorum eiginlega bara skíthræddir við að tapa í seinni hálfleik þannig við fórum í einhverja lágvörn og Panic-uðum smá en vel gert hjá okkur að halda út" 

Dagur Orri Garðarsson átti flottan leik fyrir Val í dag en hann lagði upp fyrra markið og skoraði svo gott mark sem reyndist á endanum vera sigurmark leiksins. 

„Ég reyni bara að gera það sem ég get til þess að hjálpa liðinu og er bara mjög ánægður að vera með mark og stoðsendingu í dag" 

Fredericia bauð á dögunum í Dag Orra en Valsmenn höfnuðu tilboðinu og er Dagur Orri svekktur að fá ekki að fara.

„Já og nei, ég get ekkert gert í því. Ég verð bara að halda áfram að vera hérna heima og hjálpa Val að gera það sem þeir geta til þess að vera ekki í einhverri fallbaráttu eða þannig og bara gera það sem ég get til þess að liðið nái sem besta árangri" 

Dagur Orri er vongóður um að það komi vonandi tilboð eftir tímabilið. 

„Það er aldrei að vita, maður verður bara að halda í vonina" sagði Dagur Orri Garðarsson. 

Nánar er rætt við Dag Orra Garðarsson í spilaranum hér fyrir ofan.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.21+4652
2KR21+2744
3Fram21+1444
4Breiðablik21+330
5Keflavík22-528
6ÍA21-427
7Valur22-627
8Stjarnan21-827
9FH21-1121
10Þór21-2918
11ÍBV21-1317
12KA21-1417
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.