05.09.26 - 13:30
Brynjar Ingi Erluson
England: Bournemouth kastaði aftur frá sér sigrinum á lokamínútunum

Mynd: EPA

Alex Scott átti góðan leik en það dugði ekki til sigurs

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Newcastle 2 - 2 Bournemouth
0-1 Marcus Tavernier ('9 )
0-2 Malick Thiaw ('35 , sjálfsmark)
1-2 Harvey Barnes ('37 )
2-2 Jacob Ramsey ('88 )
0-1 Marcus Tavernier ('9 )
0-2 Malick Thiaw ('35 , sjálfsmark)
1-2 Harvey Barnes ('37 )
2-2 Jacob Ramsey ('88 )
Bournemouth kastaði frá sér sigrinum í þriðja sinn á tímabilinu þegar liðið gerði 2-2 jafntefli við Newcastle United á St. James' Park í 3. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag.
Newcastle hafði farið vel af stað með sigur og jafntefli í fyrstu tveimur umferðunum. Félagið verslaði skynsamlega í sumar eftir að hafa misst nokkra máttarstólpa en Bournemouth mætti til leiks með eitt stig.
Heimamenn byrjuðu af krafti og stemningin var góð á St. James' Park. Það breyttist hins vegar á 9. mínútu þegar Marcus Tavernier kom Bournemouth yfir.
Alex Scott fékk boltann í teignum og átti skot sem fór af varnarmanni og skoppaði á fjærstöngina. Þar laumaði Tavernier sér á bak við varnarmann og potaði boltanum laglega framhjá Lukas Hornicek.
Gestirnir efldust við markið og fengu góð færi til að bæta við. Evanilson skaut yfir og Hornicek varði frá Tavernier. Það var hálf ótrúlegt að munurinn væri aðeins eitt mark en að lokum kom annað mark Bournemouth.
Justin Kluivert átti þá hörkuskot af löngu færi sem fór í stöngina, þaðan í Hornicek og til Alex Scott. Hann sendi boltann fyrir markið þar sem hann fór af Malick Thiaw og yfir Hornicek í netið. Klaufalegt hjá heimamönnum og Bournemouth komið í 2-0.
Newcastle svaraði um hæl með stórkostlegu marki frá Harvey Barnes. Hann fékk boltann úti vinstra megin, lagði hann fyrir hægri fótinn og skrúfaði hann efst í fjærhornið. Djordje Petrovic kom engum vörnum við.
Bournemouth var mun betri aðilinn fyrir hlé en Newcastle slapp inn í hálfleikinn aðeins einu marki undir. Heimamenn sóttu svo í sig veðrið í síðari hálfleik og Joe Willock komst meðal annars í hörkufæri.
Jöfnunarmarkið lét þó bíða eftir sér en enn á ný fór Bournemouth að skjálfa á lokakaflanum. Liðið hafði fengið á sig tvö mörk undir lokin gegn bæði Man City og Everton í fyrstu tveimur umferðunum og aftur missti það sigurinn úr höndunum í dag.
Amar Dedic sendi háan bolta inn í teiginn þar sem Newcastle-menn unnu tvo skalla áður en Barnes náði skoti. Boltinn fór af varnarmanni og féll fyrir Jacob Ramsey sem skoraði með hnitmiðuðu skoti meðfram grasinu í hægra hornið.
Varnarleikur Bournemouth var afar slakur og enn töpuðust stig á lokamínútunum.
Newcastle getur betur við unað eftir að hafa lent tveimur mörkum undir. Liðið er taplaust eftir þrjár umferðir með fimm stig en Bournemouth er með tvö.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Man City | 3 | +4 | 7 |
| 2 | Arsenal | 2 | +4 | 6 |
| 3 | Hull City | 2 | +3 | 6 |
| 4 | Chelsea | 2 | +2 | 6 |
| 5 | Sunderland | 3 | +1 | 6 |
| 6 | Liverpool | 3 | +2 | 5 |
| 7 | Newcastle | 3 | +2 | 5 |
| 8 | Leeds | 3 | +1 | 5 |
| 9 | Brighton | 3 | +3 | 4 |
| 10 | Brentford | 3 | +2 | 4 |
| 11 | Everton | 2 | +2 | 4 |
| 12 | Man Utd | 2 | +1 | 3 |
| 13 | Ipswich Town | 3 | -4 | 3 |
| 14 | Bournemouth | 3 | -1 | 2 |
| 15 | Nott. Forest | 3 | -1 | 2 |
| 16 | Fulham | 3 | -2 | 1 |
| 17 | Coventry | 3 | -4 | 1 |
| 18 | Crystal Palace | 3 | -5 | 1 |
| 19 | Tottenham | 3 | -5 | 1 |
| 20 | Aston Villa | 2 | -5 | 0 |