05.09.26 - 10:46
Brynjar Ingi Erluson
Framlengir við Forest annað árið í röð

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Velski landsliðsmaðurinn Neco Williams hefur framlengt samning sinn við enska úrvalsdeildarfélagið Nottingham Forest til ársins 2030.
Williams er 25 ára vængbakvörður sem kom upp í gegnum akademíu Liverpool og steig þar sín fyrstu skref í meistaraflokki. Hann var seldur til Nottingham Forest fyrir 17 milljónir punda árið 2022 og hefur síðan fest sig í sessi hjá félaginu. Á síðustu leiktíð lék hann 53 leiki í öllum keppnum.
Þetta er annað árið í röð sem Williams framlengir samning sinn við Forest. Í fyrra samdi hann til 2029 en hefur nú bætt einu ári við samninginn og er því samningsbundinn félaginu til 2030.
Williams hefur leikið 57 landsleiki fyrir Wales og skorað fjögur mörk. Hann var meðal annars í liði Wales á heimsmeistaramótinu í Katar fyrir fjórum árum.

Neco Williams has signed a new contract with the Club, extending his stay until the summer of 2030. ?? pic.twitter.com/1d6v1V405m
— Nottingham Forest (@NFFC) September 4, 2026