05.09.26 - 12:51
Brynjar Ingi Erluson
Fylkir sektað fyrir háttsemi stuðningsmanna - „Drepum alla í Mosó“

Úr stúkunni í leik Fylkis og Aftureldingar

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Fylki hefur verið gert að greiða 100 þúsund króna sekt vegna framkomu stuðningsmanna félagsins í leiknum gegn Aftureldingu í undanúrslitum Mjólkurbikarsins þann 21. júlí.
Eftirlitsmaður leiksins greindi frá því í skýrslu sinni að áldósir og plastflöskur hefðu flogið á milli stuðningsmannahópanna og stungu Fylkismenn þá „Drepum alla í Mosó“.
Fylki var gert að greiða 100 þúsund króna sekt þann 12. ágúst. Félagið áfrýjaði úrskurðinum og krafðist þess að hann yrði felldur úr gildi og félagið alfarið sýknað af því sem því var gefið að sök vegna framkvæmdar leiksins.
Áfrýjunardómstóll KSÍ telur að stuðningsmenn Fylkis hafi gerst sekir um þá háttsemi sem eftirlitsmaðurinn lýsir í skýrslu sinni og segir hegðunina vítaverða og hættulega.
„Fylkir er með stóran hóp af ungu fólki í sínum stuðningsmannahóp sem er staðsettur fyrir miðju vallar, (sem mér finnst skrítin staðsetning þar sem þau standa allan tímann og blokkera sýn úr stúkunni fyrir mikið af fólki), þetta gerir það að verkum að stuðningsmannahópur Aftureldingar er mjög nálægt Fylkishópnum.
„Á 63 mín hófst plastflösku og áldósakast á milli hópanna sem hefði getað slasað fólk illa, ég get ekki fullyrt um hvor hópurinn byrjaði, sá báða hópa kasta. Ég bað forráðamenn Fylkis um að bregðast við sem þeir gerðu með tilmælum frá vallarþuli og gæslan var fljót á vettvang og tók sér stöðu í kringum hópana tvo, tek það fram að gæslan var á leiðinni þegar ég talaði við forráðamenn Fylkis.“
„Ef svona "hópar" verða norm á íslenskum völlum, þá þarf að fara fram umræða um hvar þeir séu staðsettir og hvers konar gæsla þarf að vera til staðar. Vil líka tilkynna það að Fylkis hópurinn söng "drepum alla í Mosó" á 25 mín, þetta hefur ekkert með að styðja sitt lið,“ segir í skýrslu eftirlitsmanns.
Áfrýjunardómstóllinn hefur því staðfest úrskurð aga- og úrskurðarnefndar og stendur 100 þúsund króna sekt Fylkis óbreytt.