Fotbolti.net
05.09.26 - 18:13
Hafþór Örn Laursen

Óli Flóvents: Það eru ekki vonbrigði ef Selfoss kemst ekki upp

Auglýsing
Óli Stefán Flóventsson, þjálfari Selfoss

Óli Stefán Flóventsson, þjálfari Selfoss

Canon

Mynd: Selfoss

„Ég bara veit ekki hvernig mér líður eftir þennan leik,'' sagði Óli Flóvents, þjálfari Selfoss eftir 1-2 sigur gegn Haukum í dag. Fréttaritari fótbolta.net náði á honum eftir leikinn.
Lestu um leikinn: Haukar 1 - 2 Selfoss
„Ég get ekki sagt að við vorum upp á okkar besta í dag en á móti því get ég tekið það að við „grindum'' svona sigra þannig ég er ánægður með það.''

„Við vorum ágætir í því sem við köllum „shape''.Við gerðum þetta erfitt fyrir þá og skorum tvö góð mörk upp úr hraðaupphlaupi. En þrátt fyrir að vera manni fleirri í seinni hálfleik þá náðum við ekki almennilegri stjórn á leiknum.''

Selfoss er í harðri baráttu við Kára um það að komast upp með Haukum í Lengjudeildinni. Þegar þessi frétt er skrifuð er Kári 0-2 yfir gegn Magna og þremur stigum frá Selfossi lokaumferðinni. Óli var spurður hvort leikmenn væru að fylgjast með þeim leik.

„Ég hef reynt að láta okkur einblýna það að fókusa á það sem við erum að gera sem við höfum gert vel í sumar, og ekki að vera reikna út einhverjar stöður. Ég geri það allavega ekki og ég vona að þeir séu bara að hugsa um næsta leik gegn KFG.''

„Menn eru ekki stressaðir yfir því, það er búið að ganga á ýmsu hjá okkur í sumar og það sem ég er mest stoltur af er hvernig við höfum vaxið og þroskast í gegnum þetta allt saman.''

Myndir þú telja það vonbrigði ef að Selfoss kæmist ekki upp um deild?

„Alls ekki. Verkefnið okkar er að búa til kjarna sem hægt er að byggja á til framtíðar og hann hefur staðið sig mjög vel. Þótt það tæki ár í viðbót yrði það ekki það versta í heimi en ef við förum upp núna þá er það kjarninn sem gerði það og þá erum við líklegri til að ná stöðugleika í deildum fyrir ofan, og ekki fara bara upp og niður eins og hefur verið sviðsmyndin hjá þessu félagi seinustu ár.''

Áður en viðtalinu lauk óskaði Óli Haukum innilega til hamingju með deildina.

„Þeir eru að vinna virkilega flotta vinnu og eru vel verðskuldaðir meistarar. Það verður gaman að fylgjast með þeirra siglingu áfram undir handleiðslu Gauja og félaga, þannig til hamingju Haukar.''

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum fyrir ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.