Fotbolti.net
05.09.26 - 11:02
Brynjar Ingi Erluson

Palace lánar út leikmann sem skoraði fjögur á undirbúningstímabilinu

Palace lánar út leikmann sem skoraði fjögur á undirbúningstímabilinu
Canon

Mynd: Crystal Palace

Crystal Palace hefur sent brasilíska sóknarmanninn Matheus Franca á lán til portúgalska úrvalsdeildarfélagsins Alverca út tímabilið.
Franca er 22 ára gamall og kom til Palace árið 2023. Hann hefur leikið 19 leiki fyrir félagið í öllum keppnum og skorað eitt mark, gegn Southampton á síðasta ári.

Hann var á láni hjá Vasco da Gama í heimalandinu á síðustu leiktíð en sneri aftur til Palace í sumar og tók þátt í undirbúningstímabilinu með liðinu.

Franca skoraði fjögur mörk í æfingaleikjunum en það dugði ekki til að tryggja honum sæti í hópnum fyrir tímabilið. Palace hefur nú lánað hann til Alverca í portúgölsku deildinni.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.