05.09.26 - 12:28
Brynjar Ingi Erluson
Raphinha nýr fyrirliði Barcelona - Yamal fimmti í röðinni

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Brasilíski vængmaðurinn Raphinha er nýr fyrirliði Barcelona, en þetta staðfesti Hansi Flick, þjálfari liðsins, í dag.
Úrúgvæski varnarmaðurinn Ronald Araujo bar fyrirliðabandið hjá Barcelona áður en hann gekk til liðs við Liverpool á láni í sumar.
Raphinha hefur nú tekið við bandinu og virðist kunna vel við ábyrgðina. Brasilíumaðurinn hefur farið á kostum í upphafi tímabils, skorað fimm mörk og lagt upp eitt í þremur leikjum.
Fimm leikmenn skipa fyrirliðahóp Barcelona. Pedri er varafyrirliði og Eric Garcia tekur við bandinu ef hvorki hann né Raphinha eru til taks. Frenkie de Jong er fjórði í röðinni og Lamine Yamal sá fimmti.
Val Hansi Flick kemur ekki á óvart enda er samband hans og Raphinha sérstakt. Brasilíumaðurinn var þá varafyrirliði á síðustu leiktíð.
„Við höfum verið saman í tvö ár og nú þekki ég liðið betur. Ég valdi tvo fyrirliða og leikmennirnir kusu hina þrjá. Fyrirliðarnir eru Raphinha, Pedri, Eric, Frenkie de Jong og Lamine Yamal,“ sagði Flick.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Barcelona | 3 | +10 | 9 |
| 2 | Real Madrid | 4 | +7 | 9 |
| 3 | Betis | 4 | 0 | 9 |
| 4 | Atletico Madrid | 3 | +4 | 7 |
| 5 | Alaves | 3 | +4 | 7 |
| 6 | Osasuna | 3 | +2 | 7 |
| 7 | Sevilla | 3 | +1 | 6 |
| 8 | Deportivo | 3 | +2 | 5 |
| 9 | Racing Santander | 3 | 0 | 4 |
| 10 | Levante | 3 | 0 | 4 |
| 11 | Real Sociedad | 4 | -3 | 4 |
| 12 | Espanyol | 3 | +1 | 3 |
| 13 | Athletic | 3 | -2 | 3 |
| 14 | Getafe | 3 | -3 | 3 |
| 15 | Villarreal | 3 | -1 | 2 |
| 16 | Celta | 4 | -3 | 2 |
| 17 | Valencia | 3 | -3 | 1 |
| 18 | Vallecano | 3 | -4 | 1 |
| 19 | Elche | 3 | -6 | 1 |
| 20 | Malaga | 3 | -6 | 1 |