Fotbolti.net
05.09.26 - 10:45
Brynjar Ingi Erluson

Sjáðu mörkin: Isak sýndi sitt rétta andlit og góð ákvörðun að halda Gakpo

Alexander Isak skoraði tvö eftir tvær stoðsendingar frá Cody Gakpo

Alexander Isak skoraði tvö eftir tvær stoðsendingar frá Cody Gakpo

Canon

Mynd: EPA

Liverpool vann sinn fyrsta deildarsigur á tímabilinu er liðið lagði nýliða Ipswich Town að velli, 2-0, á Portman Road í gær.
Sænski framherjinn Alexander Isak er að finna sitt gamla form eftir erfitt fyrsta tímabil hjá Liverpool á síðustu leiktíð.

Isak skoraði tvö mörk á nokkrum mínútum í upphafi leiksins og Cody Gakpo lagði bæði upp. Gakpo þræddi hann í gegn á 6. mínútu og Isak lét vaða með föstu skoti sem Kjell Scherpen náði aðeins að verja upp í þaknetið.

Fáeinum mínútum síðar átti Gakpo gómsæta utanfótarsendingu inn fyrir vörnina á Isak. Svíinn lék tvisvar á varnarmann áður en hann renndi boltanum undir Scherpen.

Isak er því kominn með þrjú mörk í þremur leikjum á meðan Gakpo hefur skorað eitt og lagt upp þrjú. Það virðist hafa verið góð ákvörðun hjá Liverpool að halda Hollendingnum í stað þess að selja hann til Manchester City.

Hægt er að sjá allt það helsta úr leiknum í myndbandinu hér fyrir neðan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.