Fotbolti.net
05.09.26 - 12:19
Brynjar Ingi Erluson

Skiptir um treyjunúmer nokkrum dögum eftir komuna

Skiptir um treyjunúmer nokkrum dögum eftir komuna
Canon

Mynd: Chelsea

Argentínski markvörðurinn Emi Martínez hefur skipt um treyjunúmer aðeins nokkrum dögum eftir að hafa gengið í raðir Chelsea frá Aston Villa.
Chelsea tilkynnti kaupin á Martínez á leikdegi gegn Brighton og fór hann beint í byrjunarliðið.

Hann lék í treyju númer 26 enda var spænski markvörðurinn Robert Sanchez með númer eitt. Sanchez fór hins vegar á láni til Como undir lok félagaskiptagluggans og hefur Martínez nú tekið við númerinu.

Chelsea hefur lofað þeim stuðningsmönnum sem keyptu treyju merkta Martínez með númerinu 26 að þeir muni fá hana áritaða af markverðinum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.