Fotbolti.net
05.09.26 - 23:41
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Spánn: Atletico steinlá - Aubameyang fer hamförum

Spánn: Atletico steinlá - Aubameyang fer hamförum
Canon

Mynd: EPA

Þrír leikir fóru fram í spænsku deildinni í dag. Atletico Madrid tapaði, Pierre Emerick Aubameyang er sjóðandi heitur og Rayo Vallecano vann endurkomusigur.

Atletico heimsótti Athletic Bilbao. Staðan var markalaus í hálfleik en Nico Williams kom Athletic fyrir strax í upphafi seinni hálfleiks. Robert Navarro bætti síðan öðru markinu við strax í kjölfarið. Það var síðan Oihan Sancet sem innsiglaði sigurinn í lokin.

Aubameyang hefur farið gríðarlega vel af stað með nýlðum Deportivo en hann skoraði og lagði upp tvö mörk í sigri á Villarreal. Hann hefur skorað í öllum fjórum umferðunum en hann hefur alls komið að sex mörkum.

Sergio Camello jafnaði metin fyrir Rayo Vallecano gegn Racing Santander undir lok fyrri hálfleiks og tryggði liðinu sigurinn með marki strax í upphafi seinni hálfleiks.
Athletic 3 - 0 Atletico Madrid
1-0 Nico Williams ('46 )
2-0 Robert Navarro ('48 )
3-0 Oihan Sancet ('90 )

Rayo Vallecano 3 - 2 Racing Santander
0-1 Sergio Canales ('4 )
1-1 Andrei Ratiu ('17 )
1-2 Pablo Garcia ('28 )
2-2 Sergio Camello ('43 )
3-2 Sergio Camello ('47 )
Rautt spjald: Fran Perez, Rayo Vallecano ('86)

Villarreal 2 - 3 Deportivo
1-0 Nicolas Pepe ('19 )
1-1 Luismi Cruz ('43 )
2-1 Adama Traore ('76 , sjálfsmark)
2-2 Zakaria Eddahchouri ('79 )
2-3 Pierre Emerick Aubameyang ('88 )

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona8+2724
2Atletico Madrid8+1019
3Betis8+519
4Real Madrid8+1118
5Sevilla8+114
6Real Sociedad8-313
7Alaves8+411
8Deportivo8+110
9Celta8+28
10Athletic6+18
11Villarreal808
12Espanyol808
13Vallecano7-58
14Getafe8-68
15Racing Santander8-108
16Osasuna8-108
17Levante7-46
18Elche8-66
19Valencia8-95
20Malaga8-94
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.