Fotbolti.net
05.09.26 - 17:14
Brynjar Ingi Erluson

Þýskaland: Lygilegur sigur hjá Cole Campbell - Endurkoma hjá Dortmund

Cole Campbell og félagar unnu ótrúlegan sigur á Gladbach

Cole Campbell og félagar unnu ótrúlegan sigur á Gladbach

Canon

Mynd: EPA

Borussia Dortmund og Elversberg unnu hádramatíska endurkomusigra í þýsku deildinni í dag.
Nýliðar Elversberg unnu magnaðan 4-3 endurkomusigur á Borussia Mönchengladbach. Íslensk-bandaríski sóknarmaðurinn Cole Campbell var í byrjunarliði gestanna.

Hugo Bolin kom Gladbach yfir á 11. mínútu en David Mokwa jafnaði. Bolin kom heimamönnum aftur í forystu undir lok fyrri hálfleiks og Joe Scally bætti þriðja markinu við á 56. mínútu.

Gestirnir voru þó hvergi nærri hættir. Maurice Krattenmacher minnkaði muninn í 3-2 aðeins sekúndum eftir að hafa komið inn á fyrir Cole og Felix Keidel jafnaði á 80. mínútu.

Krattenmacher fullkomnaði síðan endurkomuna í uppbótartíma með sínu öðru marki eftir að hafa komið af bekknum. Frábær innkoma hjá varamanninum og Elversberg er með fullt hús stiga eftir tvær umferðir.

Dortmund vann sömuleiðis 3-2 endurkomusigur á Hoffenheim eftir að hafa lent tveimur mörkum undir.

Leon Avdullahu kom Hoffenheim yfir rétt fyrir hálfleik og Tim Lemperle tvöfaldaði forystuna um átta mínútum eftir að síðari hálfleikur hófst.

Dortmund svaraði af krafti. Serhou Guirassy minnkaði muninn og Fabio Silva jafnaði fimm mínútum síðar. Fjórum mínútum fyrir lok venjulegs leiktíma varð Albian Hajdari svo fyrir því óláni að skora sjálfsmark og tryggði það Dortmund sigurinn.

Dortmund er með fullt hús stiga en Hoffenheim er enn án stiga.

Leverkusen vann sinn fyrsta sigur á tímabilinu þegar liðið lagði Union Berlín örugglega að velli, 4-0. Ezequiel Fernandez, Facundo Medina, Patrik Schick og Ibrahim Maza skoruðu mörkin.

Freiburg marði 1-0 sigur á Paderborn og Werder Bremen hafði betur gegn Leipzig, 3-1.

Bayer 4 - 0 Union Berlin
1-0 Ezequiel Fernandez ('1 )
2-0 Facundo Medina ('28 )
3-0 Patrik Schick ('48 )
4-0 Ibrahim Maza ('66 )

Borussia M. 3 - 4 Elversberg
1-0 Hugo Bolin ('11 )
1-1 David Mokwa ('29 )
2-1 Hugo Bolin ('44 )
3-1 Joe Scally ('56 )
3-2 Maurice Krattenmacher ('66 )
3-3 Felix Keidel ('80 )
3-4 Maurice Krattenmacher ('90 )

Paderborn 0 - 1 Freiburg
0-1 Maximilian Eggestein ('26 )

Werder 3 - 1 RB Leipzig
1-0 Eren Dinkci ('4 )
2-0 Niclas Fullkrug ('68 )
3-0 Marco Grull ('80 )
3-1 Ridle Baku ('90 )

Hoffenheim 2 - 3 Borussia D.
1-0 Leon Avdullahu ('45 )
2-0 Tim Lemperle ('54 )
2-1 Serhou Guirassy ('61 )
2-2 Fabio Silva ('66 )
2-3 Albian Hajdari ('86 , sjálfsmark)
Fabio Silva og Guirassy skoruðu fyrir Dortmund

Fabio Silva og Guirassy skoruðu fyrir Dortmund

Canon

Mynd: EPA

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Freiburg2+46
2Dortmund2+36
3Elversberg2+26
4Bayern1+43
5Augsburg1+33
6Leverkusen2+33
7RB Leipzig2+13
8Stuttgart2-13
9Werder2-13
10Köln2-23
11Frankfurt101
12Mainz101
13Paderborn2-11
14Union Berlin2-41
15Hoffenheim2-20
16Hamburger1-20
17Schalke 041-30
18Gladbach2-40
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.