05.09.26 - 11:48
Brynjar Ingi Erluson
„Við erum ekki hissa á því að hann sé enn hér“

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Alex Scott, leikmaður Bournemouth, var einn eftirsóttasti bitinn á félagaskiptamarkaðnum í sumar en varð um kyrrt hjá félaginu. Það kom Marco Rose, stjóra liðsins, ekki á óvart.
Scott er 23 ára gamall og var í yngri flokkum Bournemouth áður en hann gekk til liðs við utandeildarfélagið Guernsey. Þaðan fór hann til Bristol City árið 2020.
Hann sló í gegn hjá Bristol City og var valinn besti ungi leikmaður ensku B-deildarinnar árið 2023, auk þess að vera í liði ársins. Bournemouth keypti hann í kjölfarið.
Englendingurinn hefur leikið frábærlega með Bournemouth og var reglulega orðaður við stórlið ensku úrvalsdeildarinnar í sumar en varð um kyrrt.
„Við erum ekki hissa á því að hann sé enn hér. Það var alltaf áætlunin og við höfum verið skýrir með það. Við stóðum okkur frábærlega og fengum leikmenn snemma í glugganum. Hann er frábær leikmaður, miðjumaður sem fer teig úr teig og hefur frábæran persónuleika. Ég er hæstánægður með að hafa hann í liðinu,“ sagði Rose.