Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 05. október 2019 20:52
Magnús Már Einarsson
Kristian til Bayern Munchen á reynslu
Mynd: Blikar.is
Kristian Nökkvi Hlynsson, leikmaður Breiðabliks, hélt í dag til Þýskalands þar sem hann verður á reynslu hjá þýska stórveldinu Bayern Munchen.

Hinn 15 ára gamli Kristian mun æfa með U17 og U19 ára liði Bayern.

Kristian Nökkvi var á dögunum á reynslu hjá Nordsjælland í Danmörku.

Um síðustu helgi sló hann félagsmet hjá Breiðabliki þegar hann varð yngsti leikmaðurinn í sögu félagsins til að spila leik í efstu deild karla.

Kristian kom þá inn á sem varamaður í lokaumferð Pepsi Max-deildarinnar gegn KR.

Sjá einnig:
Kristian bætti félagsmet Blika - „Ótrúlegur leikmaður"
Athugasemdir
banner
banner
banner