21.10.26 - 07:00
Brynjar Ingi Erluson
„Liverpool er stærsta félag heims“

Rio Ngumoha

Mynd: EPA

Rio Ngumoha

Mynd: EPA
Rio Ngumoha, leikmaður Liverpool á Englandi, segir félagið það stærsta í heiminum.

TENGT EFNI
Ngumoha sá yngsti í sögu Liverpool - „Held áfram að vera miskunnarlaus“
Þessi 18 ára gamli vængmaður er einn sá efnilegasti í enska fótboltanum og bindur Liverpool miklar vonir við hann til framtíðar.
Hann lagði upp tvö mörk í 4-3 sigrinum á Villarreal í gær og varð um leið yngsti leikmaðurinn í sögu Liverpool til að leggja upp mark í Meistaradeildinni.
Liverpool vinnur nú hörðum höndum að því að framlengja samning Ngumoha, en núverandi samningur hans rennur út eftir næsta tímabil.
Ummæli Ngumoha eftir leikinn gegn Villarreal benda til þess að hann sjái framtíð sína hjá Liverpool.
„Liverpool er stærsta félag heims í mínum augum. Það er afar sérstakt fyrir mig að slá met hjá þessu félagi,“ sagði Ngumoha.
Hann var valinn besti maður leiksins bæði af Liverpool Echo og UEFA.