Fotbolti.net
20.10.26 - 21:09
Brynjar Ingi Erluson
Meistaradeild

Þrír lykilmenn PSG meiddust í sigrinum á Barcelona

Kvaratskhelia meiddist illa

Kvaratskhelia meiddist illa

Canon

Mynd: EPA

Þrír leikmenn Evrópumeistara Paris Saint-Germain fóru meiddir af velli í 4-2 sigrinum á Barcelona í Meistaradeildinni í kvöld.
Meistaradeildin: Wirtz skoraði í endurkomusigri - Foden með þrennu fyrir Man City
TENGT EFNI

Meistaradeildin: Wirtz skoraði í endurkomusigri - Foden með þrennu fyrir Man City

PSG fagnaði frábærum sigri á Börsungum en sigurinn kostaði sitt og rúmlega það.

Ousmane Dembele, sem vann Ballon d'Or á síðasta ári, þurfti að fara meiddur af velli eftir aðeins tuttugu mínútna leik. Hann haltraði af velli og kom Ferran Torres inn í hans stað, en Börsungar urðu einnig fyrir áfalli þegar Dani Olmo fór meiddur af velli.

Meiðslavandræði PSG voru þó ekki á enda því þegar um fimmtán mínútur voru liðnar af síðari hálfleik þurftu bæði Brasilíumaðurinn Marquinhos og georgíski landsliðsmaðurinn Khvicha Kvaratskhelia að yfirgefa völlinn vegna meiðsla.

Meiðsli Kvaratskhelia virtust alvarlegust, en hann þurfti aðstoð við að komast af velli.

Leikmennirnir fara í nánari rannsóknir til að meta hversu alvarleg meiðslin eru, en þetta eru slæm tíðindi fyrir PSG þrátt fyrir sigurinn.

Frakkarnir eru áfram með fullt hús stiga í Meistaradeildinni og hafa tekið stórt skref í átt að sæti í útsláttarkeppninni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.