Fotbolti.net
20.10.26 - 20:00
Brynjar Ingi Erluson

Segir Arsenal setja pressu á dómara og kallar einn leikmann liðsins svindlara

Souness kallar Saka svindlara

Souness kallar Saka svindlara

Canon

Mynd: EPA

Spekingurinn Graeme Souness mætti í þáttinn Piers Morgan Football Uncensored á dögunum og lét Englandsmeistara Arsenal heyra það, en sérstaklega var hann ósáttur við leikaraskap Bukayo Saka.
Souness liggur sjaldnast á skoðunum sínum og er margt við nútímafótboltann sem fer í taugarnar á honum.

Eftir 1-0 sigur Arsenal á Nottingham Forest um helgina var það sérstaklega Saka sem fór í taugarnar á honum og fékk hann að heyra það.

„Saka lætur sig detta út um allan völl og ég er orðinn þreyttur á að horfa upp á þetta. Um leið og hann virðist vera að missa boltann er hann kominn í grasið og lætur eins og brotið hafi verið á sér. Í mínum augum eru leikmenn sem gera þetta svindlarar.“

„Hann lætur sig detta þegar hann ætti að standa í lappirnar. Hann er ekki sá eini sem gerir þetta, en um leið og hann dettur byrjar hann að öskra. Dómarinn telur fyrst að ekkert brot hafi átt sér stað, en bíður aðeins og sér að Saka liggur enn í grasinu. Svo versnar þetta þegar allir Arsenal-mennirnir í kringum hann lyfta höndunum og öskra eftir aukaspyrnu.“

„Þá fer dómarinn að efast um eigin dómgreind og endar á að flauta, þótt ekkert brot hafi átt sér stað. Fyrsta ákvörðun hans var rétt, en hann breytir henni vegna þess að hann heldur að eitthvað hafi gerst sem hann sá ekki.“

„Að gera sér upp meiðsli er svindl og þetta er orðið allt of algengt í fótboltanum í dag. Ef þú spyrðir hundrað manns hvað þeim líkaði verst við nútímafótbolta myndu 50 prósent nefna leikaraskap og hin 50 prósentin VAR,“
sagði Souness.

Samkvæmt tölfræðinni er Saka þó sá leikmaður sem næstoftast hefur verið brotið á í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu, á eftir Elliot Anderson, leikmanni Manchester City.
Graeme Souness liggur ekki á skoðunum sínum

Graeme Souness liggur ekki á skoðunum sínum

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.