Erfitt augnablik í Kópavogi - Leikmaður Þórs stálheppinn

Anton Logi fékk rautt spjald í fyrri hálfleik.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Blikar allt annað en sáttir við rauða spjaldið frá Ívari Orra. Þrjú rauð til viðbótar fóru á loft í leiknum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bjarki Björn fékk tvö gul í röð frá Gunnari Oddi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kevin Vazquez hefði átt að sjá rautt gegn Stjörnunni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Freyr fékk beint rautt spjald í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þóroddur Hjaltalín er dómarastjóri KSÍ.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Anton Logi fékk rautt spjald í fyrri hálfleik.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fótbolti.net ræddi við Þórodd Hjaltalín, dómarastjóra KSÍ, og var farið yfir nokkur atvik í þessari næstsíðustu umferð deildarinnar.
Blikinn Anton Logi Lúðvíksson fékk að líta beint rautt spjald fyrir að hafa brotið á Valdimar Þór Ingimundarsyni leikmanni Víkings við vítateig Breiðabliks.
„Þetta er mjög erfitt augnablik. Mér finnst erfitt að sjá þetta en ég held að Víkingurinn sé á undan í boltann. Fyrst að Ívar Orri dæmir þá held ég að hann verði að reka hann út af. Ég skil alveg umræðuna um að það séu varnarmenn til hliðar og Valdimar ekki með stjórn á boltanum, en ef það hefði ekki verið brotið á honum þá held ég að hann sé alltaf fyrstur á boltann."
„Svo er það atvik rétt á undan þar sem Valdimar grípur í Anton í stöðubaráttunni. Hann togar í hann og það er nóg til að dæma brot af því að þessi atburðarás gerist. Valdimar klárlega hægir á Antoni. Ég held að ef Ívar hefði séð þetta þá hugsa ég að hann hefði dæmt á þetta."
„Aftur þá er þetta rosa erfitt augnablik og ef einungis er horft í tæklinguna þá finnst mér Valdimar vera kominn einn í gegn og það væri því rautt," segir Þóroddur.
Bjarki Björn verðskuldaði tvö gul
Gunnar Oddur Hafliðason gaf Bjarka Birni Gunnarssyni, leikmanni ÍBV, tvö gul spjöld í röð og þar með rautt í fyrri hálfleik í leik ÍBV og FH á föstudag.
„Það er rétt að gefa honum tvö gul spjöld, bæði atvikin sem hann spjaldar fyrir verðskulda gult spjald. Það er peysutog og veittur hagnaður, svo er sami leikmaður brotlegur aftur. Gunnar Oddur getur í raun ekki gert neitt annað en að reka hann út af. Það er erfitt að sleppa seinna gula spjaldinu."
Kevin Vazquez stálheppinn
Leikmaður Þórs, Kevin Vazquez, danglaði hönd í Andra Rúnar Bjarnason, leikmann Stjörnunnar, undir lok leiks Þórs og Stjörnunnar á laugardag. Kevin var á þessum tímapunkti á gulu spjaldi.
„Sem eftirlitsmaður hefði ég alltaf stutt beint rautt spjald. Eina sem ég hefði ekki stutt er sú ákvörðun að spjalda ekki. Ég hef rætt við Þórð dómara og hann sér ekki alvarleikann í brotinu, sér ekki höggið en dæmir brot, en eftir að hafa séð þetta aftur þá er hann á því að brottvísun hefði alltaf átt að fylgja. Þetta er ofbeldisfull hegðun," segir Þóroddur. Þar sem Þórður dæmdi aukaspyrnu er ekki hægt að dæma eftir á í þessu atviki.
Stjórnlaus tækling Freys
Freyr Sigurðsson, leikmaður Fram, fékk beint rautt spjald í leiknum gegn ÍA í gær.
„Þetta er týpískt atvik þar sem leikmaður missir boltann of langt frá sér, fer í stjórnlausa tæklingu og ógnar öryggi mótherjans. Hann er með báðar lappir á undan sér en önnur löppin er vissulega aðeins bogin. Hann hugsar ekki um mótherjann og lendir illa í honum. Við styðjum alltaf rautt spjald í svona atvikum. Hann er vissulega neðarlega með takkana en það er ekki honum að þakka að hann slasar ekki mótherjann. Ég er eiginlega viss um að það hefði verið hægt að sannfæra mig sem eftirlitsmann um að gult spjald væri rétt niðurstaða, þar sem hann væri aðeins að reyna draga lappirnar að sér, en það er miklu auðveldara að verja rautt spjald í þessu atviki," segir Þóroddur.


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Blikar allt annað en sáttir við rauða spjaldið frá Ívari Orra. Þrjú rauð til viðbótar fóru á loft í leiknum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bjarki Björn fékk tvö gul í röð frá Gunnari Oddi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kevin Vazquez hefði átt að sjá rautt gegn Stjörnunni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Freyr fékk beint rautt spjald í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þóroddur Hjaltalín er dómarastjóri KSÍ.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
