21.10.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Flick: Þetta er engin afsökun

Hansi Flick

Mynd: EPA

Hansi Flick

Mynd: EPA
Hansi Flick, þjálfari Barcelona, viðurkennir að Paris Saint-Germain hafi verið betra liðið og verðskuldað 4-2 sigurinn þegar liðin mættust í gær.

TENGT EFNI
Meistaradeildin: Wirtz skoraði í endurkomusigri - Foden með þrennu fyrir Man City
Leikur liðanna var mikil skemmtun þar sem þau skiptust á að sækja, en PSG hafði betur að lokum með tveimur mörkum á lokakaflanum.
Flick viðurkenndi að PSG hefði verið betra liðið og sagði undirbúning sinna manna ekki hafa verið nægilega góðan.
„Þetta var frábær leikur en PSG sýndi að lokum að þeir eru með betra lið en við. Við töpuðum en lærðum mikið af þessum leik.
„Þeir eru gríðarlega hættulegir þegar þeir vinna boltann og sækja hratt. Við reyndum að verjast því og gerðum það ágætlega, en síðustu fimmtán mínúturnar vorum við einfaldlega ekki nógu ferskir.“
„Þetta er engin afsökun en undirbúningurinn fyrir leikinn var ekki nógu góður. Við þurfum að fara yfir það og gera betur næst, en það var líka margt jákvætt í okkar leik.“
Dani Olmo meiddist í fyrri hálfleik og þurfti að fara af velli, en enn er óljóst hversu alvarleg meiðslin eru.
„Við verðum bara að sjá til með Olmo. Hann fékk högg og fann fyrir óþægindum eftir það. Nú þurfum við að bíða og sjá.“
Flick hrósaði einnig hinum unga og efnilega Xavi Espart sem hefur komið sterkur inn í liðið að undanförnu.
„Xavi Espart átti frábæran leik. Hann skoraði mark og það er ótrúlegt að sjá hann spila á svona háu stigi,“ sagði Flick í lokin.