Fotbolti.net
20.10.26 - 21:23
Brynjar Ingi Erluson
Meistaradeild

Ngumoha sá yngsti í sögu Liverpool - „Held áfram að vera miskunnarlaus“

Rio Ngumoha

Rio Ngumoha

Canon

Mynd: EPA

Enska ungstirnið Rio Ngumoha fór á kostum í 4-3 sigri Liverpool á Villarreal í kvöld og skráði sig um leið í sögubækur félagsins sem yngsti leikmaður þess til að leggja upp mark í Meistaradeildinni.
Meistaradeildin: Wirtz skoraði í endurkomusigri - Foden með þrennu fyrir Man City
TENGT EFNI

Meistaradeildin: Wirtz skoraði í endurkomusigri - Foden með þrennu fyrir Man City

Ngumoha hefur fengið að spila mikið á hægri kantinum að undanförnu og hefur svo sannarlega blómstrað í þeirri stöðu.

Hann lagði upp tvö mörk í sigrinum á Villarreal. Fyrst átti hann fyrirgjöfina sem Ronald Araujo skoraði úr og síðan lagði hann upp mark fyrir Alexis Mac Allister í síðari hálfleiknum.

„Þetta var frábær frammistaða hjá strákunum. Við lentum tveimur mörkum undir en hugarfarið var alltaf rétt. Við vissum að við gætum unnið þennan leik.“

„Þetta er einn besti leikur sem ég hef spilað. Ég naut mín virkilega vel og liðið hefur hjálpað mér mikið.“

„Í hvert skipti sem ég fæ boltann og sé tækifæri til að fara í einn á einn, eða jafnvel tvo á einn, hef ég trú á sjálfum mér. Ég ætla bara að halda áfram að gera mitt og sýna enga miskunn,“
sagði Ngumoha.

Eins og áður kom fram er Ngumoha yngsti leikmaðurinn í sögu Liverpool til að leggja upp mark í Meistaradeildinni, aðeins 18 ára gamall. Hann var spurður út í metið, hvernig honum líkar að spila hægra megin og söngva stuðningsmanna Liverpool.

„Það er geggjað að slá svona met en það mikilvægasta er alltaf að vinna leikina.

„Stjórinn hefur hjálpað mér mikið á æfingum, eins og allt þjálfarateymið og samherjar mínir.“

„Við erum með bestu stuðningsmenn í heimi og það er draumur að heyra þá syngja nafnið mitt,“
sagði Ngumoha í lokin.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.