20.10.26 - 14:49
Elvar Geir Magnússon
Heitasti stjóri enska boltans gifti sig í laumi

Anna Karolin Berger og Fabian Hurzeler á leik í Toronto.

Mynd: Instagram

Mynd: EPA

Fabian Hurzeler, stjóri Brighton, notaði landsleikjagluggann síðasta til að giftast unnustu sinni, leikkonunni Anna Karolin Berger.
Hurzeler er 33 ára og álitinn einn besti ungi stjóri heims en hann hefur náð frábærum árangri hjá Brighton. Liðið spilar einn skemmtilegasta fótboltann í Evrópu í dag og situr í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar, á eftir Arsenal og Manchester City.

TENGT EFNI
Sjáðu bak við tjöldin hjá Brighton - Redknapp heimsótti spútnikliðið
Hurzeler og Berger héldu sambandi sínu leyndu lengi vel en í sumar stigu þau fram í dagsljós samfélagsmiðla. Þau fóru í frí á Máritíus, skelltu sér á leiki á HM og fóru á austurríska Formúlu 1 kappaksturinn.
Þau hafa verið í fjarsambandi þar sem Anna starfar í München og hefur leikið skartgripasmiðinn Larissu Mahnke í sápuóperunni Storm of Love.
Glöggir slúðurblaðamenn tóku eftir því að hann var með giftingarhring þegar hann stýrði Brighton í 5-0 sigrinum gegn Crystal Palace um síðustu helgi.