Fotbolti.net
21.10.26 - 07:50
Elvar Geir Magnússon

Man Utd reynir aftur við Hall og vill líka Truffert

Lewis Hall í leik gegn Liverpool.

Lewis Hall í leik gegn Liverpool.

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Manchester United heimsækir Como í Meistaradeildinni í dag en United er áberandi í slúðurpakka dagsins. Tveir bakverðir eru orðaðir við félagið og einnig Ismaila Sarr.
Manchester United hyggst ráðast í miklar breytingar á varnarlínu sinni næsta sumar. Félagið mun aftur reyna að fá til sín enska vinstri bakvörðinn Lewis Hall (22) frá Newcastle og enska landsliðinu. Hann sjálfur hefur mikinn áhuga á að fara á Old Trafford. Einnig er horft til franska varnarmannsins Adrien Truffert (24) hjá Bournemouth. (i news)

Real Madrid hefur enn áhuga á að fá Riccardo Calafiori (24) en Arsenal hefur gert ljóst að gríðarhátt tilboð þyrfti til að félagið selji ítalska varnarmanninn. (CaughtOffside)

Liverpool og Arsenal hafa bæði áhuga á Xavi Espart (19) en Barcelona mun hafna öllum tilboðum í bakvörðinn sem er með riftunarákvæði í samningi sínum sem hljóðar upp á meira en 84 milljónir punda. (Teamtalk)

Newcastle hefur áhuga á að reyna að fá enska varnarmanninn Fikayo Tomori (28) þegar samningur hans við AC Milan rennur út í sumar og hann verður frjáls ferða sinna. (Football Insider)

Arsenal hyggst reyna að fá framherjann Nicolo Tresoldi (22) frá Club Brugge í janúar en talið er að þessi þýski leikmaður sé metinn á 42 milljónir punda. (Sun)

Argentínski miðjumaðurinn Emiliano Buendía (29) er að fara að undirrita nýjan samning við Aston Villa en viðræður standa einnig yfir við Svíann Victor Lindelöf (32) og Englendinginn George Hemmings (19). (Athletic)

Manchester United fylgist áfram með stöðu kantmannsins Ismaila Sarr (28) sem leikur með Crystal Palace en tyrkneska félagið Galatasaray hefur einnig sýnt þessum senegalska landsliðsmanni áhuga. (Teamtalk)

Spænski hægri bakvörðurinn Pedro Porro (27) í Tottenham myndi skoða það alvarlega ef hann fær tækifæri til að ganga til liðs við annaðhvort Barcelona eða Real Madrid. (Football Insider)

Argentínski varnarmaðurinn Lisandro Martínez (28) stefnir á að yfirgefa Manchester United í lok tímabilsins. (Mail)
Vinstri bakvörðurinn Adrien Truffert.

Vinstri bakvörðurinn Adrien Truffert.

Canon

Mynd: EPA

Xavi Espart.

Xavi Espart.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.