Fotbolti.net
20.10.26 - 21:33
Brynjar Ingi Erluson
Meistaradeild

Fyrsta þrenna Foden í Meistaradeildinni - „Enn langt í land en er á réttri leið“

Foden skoraði þrennu

Foden skoraði þrennu

Canon

Mynd: EPA

Phil Foden, leikmaður Manchester City, er að nálgast sitt besta form, en hann skoraði sína fyrstu þrennu í Meistaradeildinni í 5-1 stórsigrinum á AEK í kvöld.
Meistaradeildin: Wirtz skoraði í endurkomusigri - Foden með þrennu fyrir Man City
TENGT EFNI

Meistaradeildin: Wirtz skoraði í endurkomusigri - Foden með þrennu fyrir Man City

Foden fór á kostum með Man City í kvöld og hefur nú komið að sjö mörkum í átta leikjum á tímabilinu.

Hann var allt í öllu í sóknarleik City og naut þess greinilega að vera úti á vellinum.

„Ég naut mín virkilega vel. Strákarnir voru enn og aftur frábærir og við sýndum mikla áræðni. Þetta var ekki alltaf fallegt en mér fannst við halda okkur við leikplanið, héldum áfram að sækja og náðum að lokum að brjóta þá niður.“

„Ég myndi segja að annað markið hafi verið flottast, sérstaklega hvernig boltinn fór í netið. Ég er mjög ánægður með að skora. Ég er sóknarmaður og þarf að halda áfram að skora mörk og hjálpa liðinu. Þetta er gott fyrir sjálfstraustið.“


Foden hefur áður sætt gagnrýni fyrir að vera of óstöðugur í frammistöðu sinni og hefur stundum átt erfitt með að fylgja eftir góðum tímabilum. Nú virðist hann hins vegar vera að finna sitt gamla form á ný.

„Þetta er að koma hægt og bítandi. Ég á enn langt í land en er á réttri leið. Það hjálpar auðvitað að skora mörk en ég vil halda áfram að leggja hart að mér og vera besta útgáfan af sjálfum mér fyrir stjórann og liðið.“

„Ég naut þess líka að fá að spila í aðeins öðru hlutverki og vera fölsk nía í kvöld.“


Margir ungir leikmenn hafa fengið tækifæri hjá Man City að undanförnu og segir Foden að stjórinn hafi mikla trú á þeim.

„Ég reyni að hjálpa þeim eins mikið og ég get, ásamt fyrirliðunum. Þetta sýnir bara hversu mikla trú stjórinn hefur á þessum strákum. Við erum að glíma við mikil meiðsli en hann er ekkert hræddur við að gefa þeim tækifæri,“ sagði Foden.
Fyrsta þrenna Foden í Meistaradeildinni - „Enn langt í land en er á réttri leið“
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.