23.11.26
Þetta vanti helst hjá íslenskum leikmönnum - „Stöðubundinn fótbolti að deyja út"
SÆBJÖRN ÞÓR ÞÓRBERGSSON STEINKE
Við Íslendingar eigum öfluga greinendur og einn af þeim er Michael John Kingdon sem starfar hjá Bröndby í Danmörku, hann er yfirmaður leikgreininga í akademíunni, en Bröndby er eitt allra stærsta félag Norðurlandanna.
Michael, sem er 29 ára, vakti á sér athygli hjá Fylki, vann sig upp yngri flokkana og Rúnar Páll Sigmundsson fékk hann í starfsteymið hjá meistaraflokki. Michael starfaði í kringum yngri landsliðin hjá KSÍ og hélt svo eftir tímabilið 2024 út til Danmerkur. Hann fékk tilboð frá Lyngby og var þar í eitt og hálft ár og í kjölfarið vildi Bröndby fá hann í sínar raðir.
Hann ræddi við Fótbolta.net um starfið, sinn feril til þessa , þróunina á fótboltanum og muninn á unglingastarfinu á Íslandi og í Danmörku.
„Ég hætti fótbolta eftir 2. flokk, fór að þjálfa 8. flokk hjá Fylki, út frá því vann ég mig upp í 2. flokk. Margrét Magnúsdóttir tók svo við U19 landsliði kvenna hjá KSÍ og bað mig um aðstoð við leikgreiningu, ég hafði þá verið að undirbúa liðin mín hjá Fylki bæði fyrir og eftir leik með leikgreiningu; myndböndum og teikningum."
„Svo tók Rúnar Páll við Fylki og hann biður mig um að koma með sér sem leikgreinandi. Við unnum saman í tvö ár, virkilega góð ár þar sem ég lærði rosalega mikið af honum og öðrum góðum mönnum. Við féllum 2024 og þá leitaði hugurinn á að komast út, vildi komast í nýtt umhverfi, sjá nýja hluti og læra," segir Michael.
Hann ákvað að fara til Danmerkur til að prófa sig í öðrum kúltúr og fá annað sjónarhorn á fótboltann.
„Ég sótti um störf og Lyngby kom svo upp í gegnum umboðsmanninn Bjarka Má Ólafsson, ég á honum mikið að þakka. Ég er ráðinn inn sem leikgreinandi fyrir aðallið Lyngby. Ég var í því starfi í hálft ár, við féllum og mér bauðst þá að taka við U19 liðinu og var í því starfi í eitt ár."

Kom inn í meistaraflokksteymi Fylkis 2022.
Mynd: Fylkir
„Í byrjun ágúst fannst mér komið gott í Lyngby, ég ákvað að hætta og ætlaði taka mér þriggja mánaða pásu til að ferðast. Ég var búinn að bóka mér miða til Balí en viku seinna hringdi Bröndby í mig, ég lét þá vita að ég vildi ferðast aðeins en þeir vildu endilega að ég tæki spjallið með þeim."
„Ég settist niður með yfirmanni akademíunnar og yfirmanni fótboltamála og við áttum hrikalega gott spjall sem endaði með því að mér bauðst að taka við þessu stöðu og það er rosalega erfitt að segja nei við Bröndby."
Hjá Bröndby hefst hefðbundinn vinnudagur snemma, farið yfir vikuna, æfingu dagsins og æfingu gærdagsins. Á æfingum er Michael í því að merkja og kóða það sem er að gerast og eftir æfingu er fundur þar sem farið er yfir æfinguna sem er yfirleitt skömmu fyrir hádegi. Seinni partinn er stundum önnur æfing, fundir eða einstaklingsmiðaðar æfingar.

Að störfum sem leikgreinandi í Árbænum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þeir höfðu verið með mig á blaði í svolítinn tíma og það spurðist út að ég hefði hætt út hjá Lyngby. Það er mikil viðurkenning að félag eins og Bröndby hafi áhuga á manni."
Stöðubundinn fótbolti að deyja út
Hvernig er að vinna hjá Bröndby og í hverju felst starfið?
„Við erum með eina flottustu aðstöðuna í Skandinavíu. Það er mjög mikið af landsliðsmönnum í U17 og U19 og öflugt starfsfólk sem heillaði. Við reynum að miðla upplýsingum til leikmanna á eins hnitmiðaðan hátt og mögulegt er, við kryfjum alla fasa leiksins í bland með gögnum."

Farið yfir gögnin hjá Fylki.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég vinn náið með leikgreinanda aðalliðsins svo þráðurinn hvernig við komum upplýsingum til leikmanna helst upp í aðalliðið."
Hvernig sjáið þið fótboltann vera að þróast?
„Líkamlegi þátturinn er alltaf að verða mikilvægari. Lið eru alltaf meira og meira tilbúin að fórna því að vera með boltann. Sem dæmi var Chelsea 25% með boltann gegn Arsenal í haust, stöðubundinn fótbolti er svolítið að deyja út og lið eru minna í því að spila út frá marki út af því að verðlaunin miðað við áhættuna er ekki þess virði. Því hraðar sem þú kemur boltanum upp völlinn og í ákveðin svæði því meiri líkur eru á góðri sókn með góðu færi."

Jakob Gunnar Sigurðsson, Michael, Viktor Bjarki Daðason og Gunnar Orri Olsen.
Mynd: Aðsend
„Hann er orðinn miklu dýnamískari. Liðin eru alltaf að sjá minni verðmæti í því að gera völlinn eins stóran og hægt er þegar þau eru með boltann þar sem þegar boltinn tapast þá er lengra á milli manna og milli lína. Lið vilja hafa styttra á milli leikmanna á vellinum svo þegar boltinn tapast þá er meira öryggi."
Leikmenn fá um 10% af upplýsingunum
Er ekkert hægt að hugsa yfir sig í þessum fræðum?
„Bæði og, þegar allt kemur til alls er einfaldleikinn oft bestur. Leikurinn er og verður alltaf leikur leikmannanna, en fótbolti hefur þróast í þá át að hann er orðinn flóknari og leikmenn þurfa fleiri upplýsingar og verkfæri til að eiga við mismunandi vandamál á vellinum. Í undirbúningi öflum við fullt af upplýsingum og leikmenn fá svo kannski um 10% af þeim. Hin 90% hefur þjálfarateymið innan handar til að styðja við ýmsar ákvarðanir fyrir og í leik. Greiningarnar eru verkfæri til að styðja við ákvarðanatöku en eiga ekki og munu ekki verða allsráðandi."

Sævar Atli Magnússon var hjá Lyngby þegar Michael kom til félagsins.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tekur saman upplýsingar og kemur með lausnir
Hvernig dettur maður inn í leikgreiningu?
„Starf leikgreinandans hefur þróast svolítið, það er orðið meira en að taka upp leik, merkja menn og kóða það sem gerist eða gerðist. Maður þarf að vera fær í því að sanka að sér upplýsingum, sortera gögnin og maður þarf að hafa skilning á ákveðnum forritum eins og HUDL. Það þarf að geta gefið taktískar lausnir út frá því sem þú sérð í gögnum, ég gæti t.d. sagt þjálfaranum hvað andstæðingurinn er að gera, en hann getur oft séð það sjálfur. Það sem sker svolítið á milli er hvaða lausnir greinandinn getur komið með sem hjálpar liðinu og leikmönnum. Þú þarft að geta komið upplýsingum frá þér á móttækilegan og skiljanlegan hátt. Þú vilt geta komið með innlegg varðandi upplegg liðsins og verið með lausnir við taktískum áskorunum."
Greinandi sem getur líka nýtt þjálfaraaugað
Hvað langar þig að gerist varðandi þinn feril, ertu að sjá þig fyrir þér sem þjálfara eða viltu ná eins langt og hægt er í greiningu?

Michael var í eitt og hálft ár hjá Lyngby.
Mynd: Lyngby
„Það hjálpar mér að vera með bakgrunn líka í þjálfun og ég er búinn með UEFA A þjálfaragráðuna. Ég myndi segja að ég væri góð blanda, er leikgreinandi en get líka séð þetta með þjálfaraauganu; leikgreinandi sem getur líka þjálfað."
„Minn helsti styrkleiki er í videóherberginu. Gervigreindin hefur auðveldað líf greinandans töluvert svo það er alltaf minni tími að fara í handavinnu og meiri í að færa upplýsingarnar í lifandi form."
„Varðandi þróun mína hjá Bröndby vil ég fyrst og fremst leggja mitt af mörkum, hafa jákvæð áhrif með leikgreiningu í akademíu liðunum. Ég vil læra af leikgreinendum aðalliðsins, læra af þjálfurunum og öðrum í þessu elítu umhverfi."

Davíð Helgi Aronsson er á láni hjá Lyngby frá Víkingi.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
„Klárlega í framtíðinni, Pro gráðan er vettvangur til að læra meira, af öðrum þjálfurum og fagmönnum úr öðrum geirum. Ég sé fyrir mér að á næstu árum muni ég reyna að taka Pro gráðuna."
Myndaði öflug tengsl í Lyngby
Hvernig var tíminn í Lyngby?
„Hann var frábær. Ég var ótrúlega heppinn að hafa fengið að vinna með rosalega góðu fólki, mjög færir aðilar bæði hjá aðalliðinu og svo í U19."

Daníel Freyr Kristjánsson var keyptur til Lyngby í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
„Þegar ég flutti út var Sævar Atli leikmaður Lyngby og ég var heppinn að hafa hann. Svo kom Jakob Gunnar út og hann bjó hjá mér í mánuð, við urðum mjög nánir. Svo komu þeir Davíð Helgi og Daníel Freyr til félagsins í sumar, þeir komu og gistu hjá mér í tvær vikur. Þetta er því smá Íslendingasamfélag."
„U19 deildin í Danmörku er sú langsterkasta í Skandinavíu, ég var því að mæta mjög öflugum liðum með góða þjálfara. Leikirnir voru rosalega oft mjög taktískir og mikil skák. Við vorum oft að mæta leikmönnum sem eru núna að spila í dönsku úrvalsdeildinni og líka um dæmi sem hafa verið seldir í Bundesliga í Þýskalandi. Við vorum að mæta liðum úr öflugum akademíum eins og FCK, Midtjylland og Nordsjælland. Við fórum líka á alþjóðleg mót og mættum liðum eins og Leipzig, Hertha Berlin og Philadelphia Union. Maður upplifði mikið og mismunandi hluti, það var fjölbreytni í fótboltakúltúrnum sem ég upplifði og það var mjög hollt. Það var ótrúlega gaman að upplifa þetta."
Hann segir að hjá U19 sé minni áhersla á að vinna leikina en þeim mun meiri á spilamennsku liðsins og þróun leikmanna. „Frammistaðan skiptir meira máli og ef góð frammistaða skilar sigri þá er það frábært. En gildunum er ekki fórnað eða ákveðnir leikmenn nýttir eingöngu til að sækja þrjú stig."

Ísak Snær Þorvaldsson er leikmaður Lyngby
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Fékk tilboð frá Sádi-Arabíu
Michael náði góðum árangri með liði Lyngby, liðið gerði vel í dönsku deildinni og á alþjóðlegu móti. Hann vakti athygli og fékk sem dæmi starfstilboð frá Sádi-Arabíu en hafnaði því. Hvernig var það?
„Mér fannst það ekki rétt fyrir mig á þeim tímapunkti. Þetta kom eftir að við vorum nýbúnir að vinna Hertha Berlin og Midtjylland. Ég var þá akkúrat á móti í Bandaríkjunum þar sem við mættum m.a. Benfica og Philadelphia Union. Þá hafði yfirmaður fótboltamála hjá þessu félagi í Sádi samband við mig."
„Danska U19 deildin er mjög öflug og mikið af þjálfurum fara úr deildinni og taka skrefið frá Danmörku. Þetta er stökkpallur fyrir efnilega þjálfara. Ég held að ég sem ungur þjálfari hafi komið þannig á radarinn hjá þeim."

Markmannsþjálfarinn Valdimar Valdimarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég er alveg hreinskilinn með það að þetta var ekki þess virði til að fara frá Köben og Evrópu til Sádi eyðimörkina. U19 þjálfarar fá ekki jafnvel greitt og leikmenn í stóru liðunum. Það er líka þannig að akademíurnar þar eru langt á eftir í samanburði við Danmörku, ég hefði því farið í að þjálfa mun slakara lið."
Hver var hápunkturinn hjá Lyngby?
„Öll samböndin, bæði við Íslendingana og samstarfsfólkið. Það stendur mest upp úr. Ég bjó við hliðina á Sævari Atla í hálft ár og ég varð náinn Ísaki Snæ. Ég kynntist mjög mikið af góðu fólki og ég verð líka að minnast á Valda Vald."

Samdi við Bröndby í ágúst.
Mynd: Bröndby
Michael hefur nú verið í tæp tvö ár í Danmörku. Hvað eru Danir að gera betur eða á annan hátt en við á Íslandi sem hægt væri að breyta á Íslandi?
„Ísland er í heimsklassa þegar kemur að grasrót, það er á bilinu 5-12 ára myndi ég segja. Síðan fer bilið að breikka. Við á Íslandi erum ótrúlega góð í að þjálfa tækni, grunntækni leikmanna, en síðan erum við langt á eftir þegar kemur að líkamlega þættinum, grunnstyrknum. Þeir eru heilt yfir með meiri sprengikraft og meiri vöðvamassa. Þeir geta klárað erfiðari æfingar og spilað á hærra tempói."
„Ég hef heyrt sama hlutinn sagðan um marga íslenska leikmenn þegar þeir koma út í dönsku akademíurnar: þeir eru á eftir samöldrum sínum þegar kemur að líkamlega þættinum. Þeir skora alltaf lágt í 'Nordic hamstring' prófinu. Líkamlega er því talsvert bil."
„Ísland er ekki með akademíu kerfi á meðan strákarnir hér úti á aldrinum 15-19 ára æfa eins og atvinnumenn. Á Íslandi fara menn í menntaskóla og æfa svo klukkan sex á kvöldin. Til samanburðar eru 10-12 manns í starfsteymi hér úti hjá U17 en á Íslandi eru 2-3. Umhverfið spilar mikið inn í, en stærsti munurinn er líkamlegi þátturinn."

Aron Baldvin og Daníel Darri.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Líkamlegi þátturinn skiptir alltaf meira og meira máli
Snýst þetta um að fara meira í ræktina?
„Þetta snýst um mataræði og styrktarþjálfun sem er sérsniðin þinni stöðu og líkama hvers og eins. Hér úti sér maður að leikmenn eru með breiðari axlir og auka fimm kíló af vöðvum."
„Akademíurnar hér úti eru meðvitaðar um að líkamlegi þátturinn er alltaf að skipta meira máli og það er brugðist við því. Það eru ráðnir fleiri styrktarþjálfarar og næringarfræðingar. Leikmenn eru nánast gerðir að vélmennum þegar kemur að lyftingum og mataræði. Þetta snýst rosalega mikið um að borða, sofa og æfa."
„Toppliðin eru í samstarfi við skólana, félögin hafa fullt aðgengi að leikmönnum yfir ákveðinn tíma dagsins og þeir fá aðstoð til að fylla upp í það sem vantar námslega."
Ætlaði að ferðast um heiminn og kynna sér annan kúltúr
Var svekkjandi þegar kallið kom frá Bröndby að þú gast ekki farið að ferðast?
„Maður þarf alltaf að sjá hvert lífið tekur mann, ég var búinn að bóka miða út. Ég ætlaði ekki bara að ferðast til að ferðast, ég ætlaði líka að læra af öðrum fótboltakúltúrum í Asíu og Suður-Ameríku til að öðlast betri skilning á menningu leikmanna sem koma frá þeim heimsálfum og svo til Evrópu. Ég held það gefi manni betri innsæi og sé hollt fyrir mann að skilja betur aðstæður sem menn hafa upplifað."
Hrósar Víkingum
Er þín upplifun að eitthvað eitt félag á Íslandi frekar en annað sé að vel þegar kemur að leikgreiningu en önnur?
„Hvað varðar strúktúr og leikgreiningu er Víkingur kominn lengst í þessu. Aron Baldvin var hrikalega öflugur í þessu og Grímur Andri fór út til Danmerkur frá þeim og Daníel Darri er að gera flotta hluti. Víkingur er á mjög góðum stað þegar kemur að þessum þætti fótboltans og á hrós skilið fyrir það."
Forvitni er lykilatriði
Hvað myndir þú segja við strák eða stelpu sem langar að verða leikgreinandi, hvernig byrjar maður?


