05.10.26 - 13:55
Elvar Geir Magnússon
Bellamy alls ekki hrifinn af langa landsleikjaglugganum

Craig Bellamy, landsliðsþjálfari Wales.

Mynd: EPA

Craig Bellamy, landsliðsþjálfari Wales.

Mynd: EPA
Craig Bellamy landsliðsþjálfari Wales er alls ekki hrifinn af því að vera með einn svona langan fjögurra leikja landsliðsglugga. Bellamy lét óánægju sína í ljós eftir 1-0 tap gegn Danmörku í gær.
Þetta var þriðja tapið í fjórum leikjum sem spilaðir voru á innan við tíu dögum sem hluti af nýlengdum landsleikjaglugga.

Bellamy segir að meiðslavandræði séu að bíta lið sitt og að stærri landslið græði á löngum glugga.
„Út frá líkamlega þættinum er ég alveg sammála þeim sem líkar ekki við svona stóran glugga. Fjórir leikir á þessu stigi, ég kaus sjálfur á móti þessu því þetta hentar okkur illa," segir Bellamy.
Leikmenn eins og Karl Darlow, Joe Rodon, Dylan Lawlor og Harry Wilson hafa misst af leikjum gluggans vegna meiðsla og David Brooks datt úr hópnum eftir tap gegn Portúgal í fyrsta leiknum. Dan James þurfti hvíld gegn Dönum og Bellamy viðurkennir að Ben Davies hefði líklega líka átt að vera hvíldur.
„Ef við lendum í einhverjum meiðslum þá missa menn af fjórum leikjum. Fyrir þau landslið sem eru ekki með sömu breidd og stóru þjóðirnar þá reynir þetta virkilega á hópinn. Mér finnst þetta hannað fyrir stóru þjóðiarnar sem eru með mikla breidd."