Fotbolti.net
05.10.26 - 12:42
Elvar Geir Magnússon

Ítalski Brassinn gæti spilað sinn fyrsta landsleik í kvöld

Samuele Inacio.

Samuele Inacio.

Canon

Mynd: EPA

Táningurinn Samuele Inacio, leikmaður Borussia Dortmund, er í leikdagshópnum hjá Ítalíu sem mætir Tyrklandi í Þjóðadeildinni í kvöld.

Hann er með tvöfalt ríkisfang en allt stefnir í að hann spili fyrir Ítalíu frekaren Brasilíu.
Þjóðadeildin í dag - Frakkland og Ítalía á heimavelli
TENGT EFNI

Þjóðadeildin í dag - Frakkland og Ítalía á heimavelli

Inacio er 18 ára og er sonur Inacio Pia sem lék sem sóknarmaður í ítölsku A-deildnni Strákurinn lék síðasta sumar sinn fyrsta landsleik fyrir Ítalíu, í vináttulandsleik gegn Lúxemborg.

Samkvæmt reglum FIFA geta leikmenn skipt um landslið eftir þrjú ár án landsleikja, að því tilskildu að þeir hafi ekki spilað fleiri en þrjá keppnisleiki fyrir aðalliðið áður en þeir urðu 21 árs og ekki tekið þátt í stórmóti.

Ef Inacio spilar gegn Tyrklandi í kvöld þá yrði það hans fyrsti keppnisleikur fyrir A-landslið Ítalíu. Það myndi koma í veg fyrir að hann gæti spilað fyrir Brasilíu næstu þrjú árin, þó að reglur FIFA myndu samt opna dyrnar fyrir framtíðarskiptum, að því tilskildu að hann spili ekki fleiri en þrjá keppnisleiki fyrir 21 árs aldur.

Allir keppnisleikir fyrir aðalliðið eftir 21 árs aldur binda leikmann almennt við landsliðið sem hann hefur spilað fyrir.

Inacio, sem var í Atalanta akademíunni, fæddist í Bergamó á Ítalíu 2. apríl 2008 og hefur spilað fyrir unglingalandslið Ítalíu.

Líkleg byrjunarlið
Ítalía og Tyrkland mætast klukkan 18:45 í kvöld. Arda Guler, leikmaður Real Madrid, verður ekki með Tyrkjum þar sem hann tekur út leikbann.

Moise Kean verður ekki með Ítalíu vegna meiðsla og Gianluca Scamacca verður væntanlega í byrjunarliðinu. Þá er búist við því að Issa Doumbia, 22 ára miðjumaður Sporting, leiki sinn fyrsta byrjunarliðsleik fyrir Ítalíu.

Líklegt byrjunarlið Ítalíu (4-3-3): Donnarumma; Di Lorenzo, Mancini, Bastoni, Ruggeri; Barella, Romano, Doumbia; Vergara, Scamacca, Maldini.

Líklegt byrjunarlið Tyrklands (4-3-3): Cakir; Celik, Demiral, Kabak, Kadioglu; Yuksek, Özkan; Aydin, Akgun, Akturkoglu; Gul.

Liðin mættust fyrir viku í Tyrklandi og þá vann Ítalía öruggan sigur:

Tyrkland 1 - 4 Ítalía
0-1 Alessandro Bastoni ('9 )
0-2 Davide Frattesi ('22 )
0-3 Michael Kayode ('27 )
1-3 Baris Yilmaz ('47 )
1-4 Pio Esposito ('50 )
Arda Guler verður ekki með Tyrkjum.

Arda Guler verður ekki með Tyrkjum.

Canon

Mynd: EPA

Issa Doumbia kom af bekknum gegn Tyrkjum á dögunum.

Issa Doumbia kom af bekknum gegn Tyrkjum á dögunum.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.