Fotbolti.net
04.10.26 - 21:50
Ívan Guðjón Baldursson

Jorge Jesus: Ronaldo ræður hvað hann gerir

Jorge Jesus: Ronaldo ræður hvað hann gerir
Canon

Mynd: EPA

Jorge Jesus landsliðsþjálfari Portúgal svaraði spurningum eftir fjórða sigur liðsins í fjórum leikjum undir hans stjórn.
Þjálfarinn samþykkir sáttafund með Ronaldo
TENGT EFNI

Þjálfarinn samþykkir sáttafund með Ronaldo

Portúgal lagði Noreg að velli 2-1 fyrr í kvöld og á fréttamannafundi eftir lokaflautið fékk Jesus spurningar varðandi Cristiano Ronaldo, sem yfirgaf landsliðsbúðirnar í vikunni.

Ronaldo fór í fýlu og talaði málpípa hans í portúgölskum fjölmiðlum um svik af hálfu Jorge Jesus, sem lét hann hita upp án þess að nota hann í fyrri sigrinum gegn Noregi fyrir viku síðan. Systir Ronaldo sagði portúgölsku þjóðina ekki verðskulda Ronaldo en Jesus hefur aldrei lokað neinum dyrum.

„Fyrir mitt leyti er allt opið, Cris ræður sjálfur hvað hann gerir við sitt líf. Það hefur orðið einhver misskilningur og að mínu mati er auðvelt að leysa úr þessum ágreiningi. Ég hef ekkert á móti Cristiano og tel mig hafa not fyrir hann með landsliðinu," sagði Jesus.

„Ég er ekki leiður yfir þessu, Ronaldo ræður þessu alfarið. Þetta er hann sem er að taka þessar ákvarðanir, ekki ég."
Jorge Jesus: Ronaldo ræður hvað hann gerir
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.