Fotbolti.net
05.10.26 - 15:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Sonur Carrick lék sinn fyrsta leik fyrir Man Utd

Michael Carrick.

Michael Carrick.

Canon

Mynd: EPA

Jacey Carrick, 16 ára sonur Michael Carrick, lék sinn fyrsta leik fyrir aðallið Manchester United í síðustu viku.
Jacey kom við sögu í æfingaleik United gegn Lausanne fyrir luktum dyrum á Carrington, æfingasvæði United, á föstudaginn. Carrick, sem tók við stjórastarfinu hjá United í sumar, kallaði upp nokkra leikmenn úr akademíunni þar sem stór hluti aðalliðshópsins var í landsliðsverkefnum.

Þar á meðal var sonur hans, sem hefur verið í akademíu félagsins frá sex ára aldri.

Jacey lék með þekktum leikmönnum á borð við Harry Maguire og Matheus Cunha. Carlos Baleba, sem United keypti frá Brighton fyrir 70 milljónir punda í sumar, kom einnig við sögu eftir að hafa verið frá vegna meiðsla.

Jacey hefur verið að spila með U18 ára liði United á tímabilinu og hefur komið við sögu í fimm leikjum. Hann skrifaði undir námsmannasamning við félagið í júlí.

Michael Carrick hefur áður sagt að Jacey sé „United-óður“ eftir að hafa alist upp við að sjá föður sinn spila með liðinu.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.