„Þetta er eins og fyrir framherjann, hann fer inn og hann vill skora og við viljum halda hreinu“

Guðlaugur Victor fagnar hér með Orra Steini

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Guðlaugur Victor fagnar hér með Orra Steini

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Síðustu ár hefur mikið verið rætt og ritað um miðvarðarskort íslenska landsliðsins. Ef að horft er til byrjunarliðanna sem Arnar Gunnlaugsson hefur stillt upp í þessum glugga þá hefur í öll skiptin annar miðvörðurinn verið leikmaður sem er miðjumaður að upplagi. Stefán Teitur Þórðarson byrjaði fyrstu tvo leikina og Aron Einar Gunnarsson byrjaði síðasta leik gegn Búlgaríu. Þrátt fyrir þetta hefur liðið aðeins fengið á sig eitt mark í glugganum en það ber að nefna að Hákon Rafn Valdimarsson hefur verið gífurlega traustur á milli stanganna og hafa mótherjarnir ekki verið þeir sterkustu.
Arnar Gunnlaugsson og Guðlaugur Victor Pálsson sátu fyrir svörum á blaðamannafundi í dag fyrir leik liðsins gegn Eistlandi annað kvöld. Þeir voru spurðir út í hvort það geti veitt liðinu auka sjálfstraust að halda hreinu tvisvar í röð.
„Já klárlega sko, varnarleikurinn okkar er búinn að vera mjög öflugur. Ég hef sagt það að opni varnarleikurinn okkar síðasta árið hefur verið mjög sterkur. Við erum búnir að fá á okkur mörk en það má rekja það til mikið af, eitthvað sem kemur ekki beint opnum varnarleik við, sem sagt almennur varnarleikur. En svo er það líka bara þannig, nefndu mér lið sem er að fara að vinna eitthvað og þá er það bara mjög einfalt að þú skorar að meðaltali tvö mörk í leik, plús, mínus, tíu prósent og þú færð á þig eitt mark í leik, plús, mínus tíu prósent. Þannig að ef þú nærð að halda þessari tölfræði í gegnum keppnina, í gegnum deildarkeppnir og svoleiðis að þá ertu að gefa þér 95 prósent möguleika á að vinna. Ef að við náum að halda þessu áfram að þá er það klárt mál að við erum að fara að vinna þennan riðil,“ sagði Arnar.
Guðlaugur Victor tók undir með Arnari og bætti við:
„Já ég meina, sem varnarmaður og sérstaklega líka fyrir markmanninn þá er náttúrulega frábært að halda hreinu og það gefur okkur alltaf mikið ‘boost’ og þeim sem eru að spila. Þetta er eins og fyrir framherjann, hann fer inn og hann vill skora og við viljum halda hreinu og það er bara okkar gulrót. Það gefur okkur klárlega þetta sjálfstraust og gefur okkur öllum það, bara sem einstaklingar en líka sem lið. Það er ekkert bara varnarlínan sem að á að fá kredit fyrir það, það er bara allt liðið þegar það gerist og maður horfir bara á það þannig að þegar við skorum og erum að vinna að þá er það allt liðið. Þegar við verjumst vel sem lið að þá eru líka stærri líkur á að við vinnum leiki.“
Arnar benti svo á það á léttu nótunum að Guðlaugur Victor væri næst markahæsti leikmaður liðsins frá því að hann tók við en Gulli er búinn að skora fjögur mörk. Hann skoraði þriðja mark leiksins á móti Lúxemborg í þessum glugga þegar hann stangaði frábæra hornspyrnu Gylfa Þórs í netið.
