Fotbolti.net
05.10.26 - 11:40
Elvar Geir Magnússon

Þriðja liðið á Eistland - Ísland kemur frá Skotlandi

David Dickinson.

David Dickinson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eimskip
Klukkan 18:45 annað kvöld mætast Eistland og Ísland í C-deild Þjóðadeildarinnar. Eistland er með fimm stig í öðru sæti, tveimur stigum á eftir Íslandi sem trónir á toppnum.

Skoski dómarinn David Dickinson verður með flautuna en hann dæmdi á Kópavogsvelli í fyrra þegar Breiðablik vann Egnatia 5-0.

„Skotarnir áttu góðan leik að mínu mati. Ég var sérstaklega ánægður með að hann skyldi spjalda fyrirliða Egnatia á 29. mínútu fyrir tuð. Sá maður var búinn að vera vælandi síðan hann steig inn á völlinn og átti þetta spjald fyllilega skilið," skrifaði Haraldur Örn Haraldsson fréttamaður Fótbolta.net og gaf Dickinson 8 í einkunn.

Eistland - Ísland
Dómari: David Dickinson SCO
Aðstoðardómari 1: David McGeachie SCO
Aðstoðardómari 2: Jonathan Bell SCO
Fjórði dómari: Lloyd Wilson SCO
VAR dómari: Kevin Clancy SCO
Aðstoðar VAR dómari: Christopher Graham SCO
Arnar býst við „slagsmálum“ gegn liði sem hefur öðlast sjálfstraust
TENGT EFNI

Arnar býst við „slagsmálum“ gegn liði sem hefur öðlast sjálfstraust

Framundan hjá U21 landsliðinu er gríðarlega mikilvægur leikur við Færeyja um annað sæti riðilsins í undankeppni EM en hann á að fara fram á morgun. Ísland þarf að vinna Færeyjar og treysta á að Sviss nái ekki að vinna Frakkland. Gangi það eftir tryggir Ísland sér sæti í umspilið og færist því nær því að komast á Evrópumótið í þriðja sinn í sögunni. Færeyjar eiga ekki lengur möguleika í riðlinum.

Dómarateymi leiksins kemur frá Möltu.

U21: Færeyjar - Ísland
Dómari: Matthew De Gabriele MLT
Aðstoðardómari 1: Jurgen Spiteri MLT
Aðstoðardómari 2: Mitchell Scerri MLT
Fjórði dómari: Fyodor Zammit MLT
Þriðja liðið á Eistland - Ísland kemur frá Skotlandi
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þriðja liðið á Eistland - Ísland kemur frá Skotlandi
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.