Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fim 05. nóvember 2020 10:55
Magnús Már Einarsson
Kristján Guðmunds framlengir við Stjörnuna
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kristján Guðmundsson, þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Stjörnunni, hefur framlengt samning sinn við félagið til tveggja ára.

Kristján var að ljúka sínu öðru tímabili sem þjálfari Stjörnunnar.

„Það er gífurleg ánægja sem ríkir með störf Kristjáns og hlökkum við mikið til þess að fylgjast með þróun liðsins næstu ár," segir á Facebook síðu Stjörnunnar.

„Liðið endaði í 6. sæti í Pepsi-Max deildinni þetta árið og er stefnan sett ofar næstu tímabil."

Kristján er mjög reyndur þjálfari en hann hefur meðal annars þjálfað karlalið hjá ÍBV, Leikni, Keflavík, Val, ÍR og Þór.

Kristján Guðmundsson framlengir!

Kristján Guðmundsson, þjálfari meistaraflokks kvenna framlengir við félagið til...

Posted by Stjarnan FC on Fimmtudagur, 5. nóvember 2020

Athugasemdir
banner
banner
banner