Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 05. nóvember 2020 22:05
Ívan Guðjón Baldursson
Mary Alice Vignola til Vals (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valur er búið að ganga frá félagaskiptum Mary Alice Vignola til félagsins.

Mary var lykilmaður í liði Þróttar R. sem bjargaði sér frá falli úr Pepsi Max-deild kvenna eftir ótrúlega jafnt tímabil. Þróttur endaði í fimmta sæti, tveimur stigum frá fallsæti.

Mary er 22 ára gömul og getur bæði leikið sem vinstri bakvörður eða kantur. Hún skoraði 6 mörk í 13 leikjum á nýafstöðnu tímabili.

Valur er að styrkja hópinn sinn eftir að hafa endað í öðru sæti eftir Breiðabliki sem vann báðar innbyrðisviðureignir liðanna.

Mary Alice Vignola til liðs við Val

Mary Alice Vignola hefur skrifað undir samning við Val. Hún er 22 ára og leikur sem...

Posted by Valur Fótbolti on Thursday, 5 November 2020

Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner