Brentford heimsækir Leeds í ensku úrvalsdeildinni kl 14 í dag.
Liðið verður án framherjans Ivan Toney en hann greindist með Covid.
Þetta er mikið áfall fyrir félagið en hann hefur skorað fjögur mörk og lagt upp tvö á þessari leiktíð.
Þá eru góðar fréttir úr leikmannahópi Leeds þar sem Luke Ayling er mættur aftur í byrjunarliðið og þeirra aðal markaskorari á síðustu leiktíð, Patrick Bamford, er á bekknum.
Brentford er í 12. sæti deildarinnar með 16 stig stigi á undan Leeds sem er í 16. sæti.
Athugasemdir