Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fös 06. janúar 2023 21:03
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Keane: Eins og De Gea sé búinn að fá sér
Mynd: Getty Images

Roy Keane fyrrum leikmaður Manchester United gagnrýndi David de Gea markvörð liðsins fyrir tilburði hans þegar Everton jafnaði metin.


Conor Coady jafnaði metin fyrir Everton eftir að liðið lenti undir á fjórðu mínútu.

Neal Maupay átti skot úr þröngu færi en De Gea missti boltann í gegnum klofið á sér ansi klaufalega og eftirleikurinn auðveldur fyrir Coady.

„Það er eins og hann sé búinn að fá sér nokkra drykki. Það er eins og markmaðurinn hafi verið rekinn af velli og útileikmaður sé í marki og hann viti ekkert hvað hann á að gera," sagði Keane á ITV.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner