Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 06. mars 2021 15:30
Aksentije Milisic
Martinez: Elska Arsenal en þeir áttu mig ekki skilið
Mynd: Getty Images
Emiliano Martinez, markvörður Aston Villa, gekk til liðs við félagið frá Arsenal síðasta sumar. Hann hefur nú gefið það út að hann yfirgaf Lundúnarliðið vegna þess að félagið sýndi honum ekki traust.

Þessi Argentínumaður gekk til liðs við Arsenal frá Independiente árið 2010, þá aðeins 17 ára gamall. Hann fór á láni frá Arsenal til nokkura liða áður en liðið seldi hann endanlega síðasta sumar.

„Ég elska allt sem tengist Arsenal. Ég elska þá ennþá og horfi á leikina sem liðið spilar. En mér líður eins og þeir hafi ekki treyst mér eins og þeir hefðu átt að gera," sagði Martinez.

„Það er raunveruleikinn. Þeir héldu áfram að kaupa markmenn í staðinn fyrir að nota mig. Ég var markvörður frá akademíunni þeirra."

„Þegar ég spilaði vel á síðustu leiktíð, þá er leið mér samt eins og þeir ættu mig ekki skilið vegna þess hvernig þeir komu fram við mig. Þeir gátu ekki lofað mér leikjunum sem ég þurfti og því valdi ég að fara."

Þessi 28 ára gamli markvörður hefur staðið sig frábærlega hjá Aston Villa í vetur og er í baráttunni um gullhanskann á þessari leiktíð.
Athugasemdir
banner