Fotbolti.net
06.03.21 - 18:50
Victor Pálsson

Myndband: Ótrúlegt klúður Saiss gegn Aston Villa

Myndband: Ótrúlegt klúður Saiss gegn Aston Villa
Canon

Mynd: Getty Images

Nú er í gangi leikur Aston Villa og Wolves í ensku úrvalsdeildinni en staðan er markalaus eftir rúman klukkutíma.
Það er í raun ótrúlegt að Wolves sé ekki komið yfir í þessum leik eftir færi sem miðjumaðurinn Roman Saiss fékk í síðari hálfleik.

Saiss bauð upp á eitt af klúðrum tímabilsins en hann þurfti aðeins að setja boltann í autt netið nánast á marklínunni.

Miðjumaðurinn var þó ekki reiðubúinn fyrir framan markið og tókst að skófla boltanum yfir á óskiljanlegan hátt.

Saiss er ekki þekktur fyrir að skora mörg mörk en hann hefur gert 12 í 165 leikjum fyrir Wolves á ferlinum.

Klúðrið má sjá hér fyrir neðan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.