Umdeildu vatnspásurnar frábær viðbót fyrir sjónvarpsstöðvar

Eru vatnspásurnar komnar til að vera?

Mynd: EPA

Argentínumenn í vatnspásu.

Mynd: EPA

Eru vatnspásurnar komnar til að vera?

Mynd: EPA
Vatnspásurnar umdeildu hafa verið mikið í umræðunni á heimsmeistaramótinu í fótbolta. Þriggja mínútna hlé er gert um miðjan fyrri hálfleik og svo aftur um miðjan seinni hálfleik.
Áhorfendur á mótinu hafa baulað þegar vatnspásurnar eru en þær brjóta upp leikinn og hafa talsverð mikil áhrif á hann. Þjálfararnir nota þær til að koma skipunum og reyna að breyta þróun leiksins.
Þessi hlé hafa hinsvegar reynst gullkista fyrir marga sjónvarpsrétthafa, þá sérstaklega í Bandaríkjunum. Þarna skapast pláss fyrir dýmætan auglýsingatíma og eykur tekjur mikið. Þetta gæti gert það að verkum að vatnspásurnar verði komnar til að vera til framtíðar.

TENGT EFNI
Baulað á vatnspásurnar - Íslendingar ekki hrifnir
Vatnspásurnar komnar til að vera?
„Stærstu áhrifin sem þetta heimsmeistaramót gæti skilið eftir sig mun ekki tengjast pólitískum afskiptum eða dómarakenningum. Það verða vatnspásurnar," segir viðskiptablaðamaðurinn Ben Strauss.
Hann segir líklegt að vatnspásurnar verði stóra málið í viðræðum um sjónvarpsréttindi í framtíðinni.
„Það verður erfitt að stíga til baka því það hefur sýnt sig að vatnspásurnar skila augnum hagnaði í kassann. Þarna er gluggi þar sem auglýsendur geta gengið að því vísu að ná beint til áhorfandans."
TalkSport fjallar um málið og telur ólíklegt að vatnspásurnar verði teknar upp á næstunni í stærstu deildum Evrópu, þó séu mun meiri líkur á því að þær verði fljótlega fastur liður í Bandaríkjunum. Þar verður fróðlegt að sjá hvaða áhrif yfirstandandi heimsmeistaramót mun hafa en Bandaríkjamenn eru án vafa tilbúnari en Evrópumenn að prófa breytingar á íþróttinni.