Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 06. mars 2021 22:51
Victor Pálsson
Reus með fast skot á dómarana - „Hann hefði 100 prósent flautað fyrir Bayern"
Mynd: Getty Images
Marco Reus, leikmaður Dortmund, var virkilega pirraður eftir leik liðsins við Bayern Munchen í kvöld í þýsku Bundesligunni.

Bayern vann að lokum 4-2 heimasigur en Dortmund vildi fá brot dæmt á Leroy Sane áður en heimaliðið skoraði sitt þriðja mark.

Reus ræddi þennan dóm við blaðamenn eftir leik og ásakaði þar dómarana um ósanngirni í garð Dortmund.

Að sögn Reus hefði Bayern alltaf fengið dæmt brot ef þeir hefðu lent í sömu stöðu.

„Að mínu mati er þetta klárt brot," sagði reiður Reus í samtali við Sky Sports í Þýskalandi.

„Ég skal vera hreinskilinn: ef þetta væri brot gegn Bayern hefði dómarinn 100 prósent flautað. Þannig er það, fleira var það ekki."
Athugasemdir
banner
banner
banner