Raphael Varane, varnarmaður Real Madrid, hefur greinst með kórónuveiruna.
Real Madrid staðfesti þetta nú rétt í þessu en Varane verður ekki með gegn Liverpool í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld.
Real Madrid staðfesti þetta nú rétt í þessu en Varane verður ekki með gegn Liverpool í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld.
Þá er ljóst að hann nær heldur ekki að spila síðari leik liðanna í næstu viku né leikinn gegn erkifjendunum í Barcelona um næstu helgi.
Þetta er mikið áfall fyrir Real Madrid en Sergio Ramos verður heldur ekki í vörn liðsins í næstu leikjum vegna meiðsla.
Athugasemdir