Fotbolti.net
06.04.26 - 12:18
Brynjar Ingi Erluson

Fengu norskan sjúkraþjálfara í fullt starf - „Þegar enginn stoppar mig af þá keyri ég bara áfram“

Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR

Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, hitaði upp fyrir Bestu deildina í útvarpsþættinum Fótbolti.net um helgina, en þar ræddi hann meðal annars ráðninguna á norska sjúkraþjálfaranum Magnus Börheim.
Í þættinum talaði Óskar um að KR-ingar hafi þurft að skoða sín mál eftir síðasta tímabil.

Mönnum var flýtt aftur á völlinn eftir meiðsli og álagið mikið á Guðjóni Erni Ingólfssyni, styrktarþjálfara liðsins.

Því var ákveðið að leita erlendis til að dreifa álaginu en KR fékk norska sjúkraþjálfarann Magnus Börheim sem starfaði áður hjá Tromsö og SönderjyskE.

„Við vorum tilneyddir, eins óþægilegt og það er, að líta í eigin barm eftir síðasta tímabil. Það er alveg ljóst að við keyrðum þetta harðar en góðu hófi gegnir. Við vorum ekki nógu skynsamir þegar menn voru að koma til baka úr meiðslum þannig við fórum mjög vel yfir það og fengum inn norskan sjúkraþjálfara í fullt starf sem var hjá Tromsö og SönderjyskE,“ sagði Óskar í þættinum.

„Hann hefur hjálpað mikið til við að dreifa álaginu af Guðjóni styrktarþjálfara varðandi álagsstjórnun og ég myndi halda að við séum búnir að hlaupa kannski 30 prósent minna en í fyrra. Kannski gáfulegra og þó æfingaálagið hafi verið aðeins minna þá held ég að menn séu í ljómandi fínu standi. Sennilega hefði Guðjón þurft að banka í mig í janúar eða febrúar og biðja mig um að róa mig niður í lengd æfinga og fleira, en hann var of næs og þegar enginn stoppar mig af þá keyri ég bara áfram,“ sagði Óskar um ráðninguna.

KR-ingar hafa litið mjög vel út á undirbúningstímabilin. Liðið komst í úrslitaleik Lengjubikarsins og eru komnir í 32-liða úrslit Mjólkurbikarsins en liðið tekur á móti Val klukkan 17:00 í Egilshöllinni í dag.
Magnus Börheim var ráðinn í fullt starf hjá KR

Magnus Börheim var ráðinn í fullt starf hjá KR

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Útvarpsþátturinn - Stóri upphitunarþátturinn fyrir Bestu

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.