Fotbolti.net
06.05.17 - 17:34
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Tóti Dan: Þetta var mikilvægasti leikur tímabilsins

Auglýsing
Þórhallur Dan var sáttur með stigið.

Þórhallur Dan var sáttur með stigið.

Canon

Mynd: Mynd: Grótta

„Þetta var barátta og tvö mjög góð lið. Það er alltaf erfitt að sækja stig hingað þannig að við förum tiltölulega sáttir héðan,\" sagði Þórhallur Dan Jóhannsson, þjálfari Gróttu, eftir 2-2 jafntefli gegn Leikni F. í Inkasso-deildinni í dag.

Undir lok leiks fóru tvö rauð spjöld á loft, Hilmar Freyr Bjartþórsson, leikmaður Leiknis, fékk rautt og í kjölfarið ákvað dómarinn að gefa manni í þjálfarateymi Gróttu rauða spjaldið.
„Mér fannst leikmaður Leiknis slá einn leikmann okkar, þetta er svona móment, læti og það er ástríða í þessu,\" sagði Þórhallur um atvikið, en Gróttu er af mörgum spáð falli.

„Okkar stefna er náttúrulega að mæta í hvern leik og þetta var mikilvægasti leikurinn á tímabilinu sem við spiluðum í dag og næsti leikur verður mikilvægasti leikurinn á tímabilinu.\"

„Við ætlum að reyna að stríða eins mörgum og við getum og sjá síðan hvað gerist 23. september.\"

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.