Fotbolti.net
22.07.26 - 19:29
Brynjar Ingi Erluson

FIFA opinberar úrvalslið HM

Michael Olis er í liðinu

Michael Olis er í liðinu

Canon

Mynd: EPA

Alþjóðafótboltasambandið, FIFA, hefur opinberað úrvalslið heimsmeistaramótsins í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó.
Vozinha, markvörður Grænhöfðaeyja, stendur á milli stanganna eftir frábæra frammistöðu í frumraun þjóðarinnar á heimsmeistaramóti. Hann var einnig í úrvalsliðum fjölmargra miðla og kemur valið því ekki sérstaklega á óvart.

Varnarvalið er hins vegar umdeilanlegra. Pedro Porro og Marc Cucurella eru í bakvarðarstöðunum, sem er vel verðskuldað, en Lisandro Martinez og Dayot Upamecano mynda miðvarðaparið.

Þeir áttu vissulega báðir frábært mót og auðvitað er ekki hægt að fylla liðið af Spánverjum. Valið vekur þó athygli í ljósi þess að Pau Cubarsi var valinn besti ungi leikmaður mótsins og Aymeric Laporte var nánast óaðfinnanlegur við hlið hans. Hvorugur þeirra fékk þó tilnefningu.

Á miðjunni eru Jude Bellingham, Michael Olise og Rodri. Bellingham fór á kostum með Englendingum, sem unnu til bronsverðlauna, og Olise gaf flestar stoðsendingar á mótinu, sjö talsins. Rodri var síðan besti leikmaður keppninnar og stjórnaði spilinu hjá heimsmeisturum Spánar.

Fremstu þrír voru nánast sjálfvaldir: Erling Braut Haaland, Lionel Messi og Kylian Mbappe. Haaland var magnaður þegar Noregur komst í átta liða úrslit, hinn 39 ára Messi skoraði átta mörk og lagði upp fjögur til viðbótar og Mbappe varð markakóngur mótsins með tíu mörk.

Hafa verður í huga að stuðningsmenn kusu úrvalslið mótsins, rétt eins og mann leiksins eftir hvern leik í keppninni.

Liðið: Vozinha (Grænhöfðaeyjar), Pedro Porro (Spánn), Dayot Upamecano (Frakkland), Lisandro Martínez (Argentína), Marc Cucurella (Spánn), Jude Bellingham (England), Michael Olise (Frakkland), Rodri (Spánn), Kylian Mbappe (Frakkland), Lionel Messi (Argentína), Erling Haaland (Noregur).

Pau Cubarsi var besti ungi leikmaðurinn en ekki í liði mótsins

Pau Cubarsi var besti ungi leikmaðurinn en ekki í liði mótsins

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.