Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 06. maí 2021 09:39
Elvar Geir Magnússon
Ellefu ára stelpa bað Gary Martin um að koma út í fótbolta
Mynd: Selfoss
Sóknarmaðurinn Gary Martin spilar með Selfossi í Lengjudeildinni í sumar eftir óvænta atburðarás og fjaðrafok þegar samningi hans við ÍBV var rift.

Gary Martin hefur þegar fengið að kynnast þeim fótboltaáhuga sem ríkir hjá krökkunum á Selfossi.

Hann segir frá því á Twitter að ellefu ára stelpa með markmannshanska og í fótboltaskóm hafi bankað hjá sér í gær. Hún sðurði Gary hvort hann vildi koma út að leika í fótbolta.

Ekki fylgir sögunni hvort sóknarmaðurinn hafi þegið boðið!

Lengjudeildin hefst í kvöld en Selfoss, sem er nýliði í deildinni, á heimaleik gegn Vestra á laugardag.


Athugasemdir
banner
banner
banner