Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 06. maí 2022 17:03
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Byrjunarlið FH og Vals: Davíð Snær beint í liðið - Siggi Lár áfram utan hóps
Kristinn Freyr mætir sínum fyrrum félögum í dag.
Kristinn Freyr mætir sínum fyrrum félögum í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Davíð beint í byrjunarliðið
Davíð beint í byrjunarliðið
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Klukkan 18:00 hefst fyrsti leikur fjórðu umferðar Bestu deildar karla þegar Valur kemur í heimsókn á Kaplakrikavöll og mætir þar heimamönnum í FH.

Valur er fyrir leikinn með fullt hús stiga á meðan FH er með þrjú stig. Valur vann gegn KR í síðustu umferð en FH tapaði gegn Breiðabliki.

Lestu um leikinn: FH 2 -  2 Valur

Ólafur Jóhannesson, þjálfari FH, gerir þrjár breytingar á liði sínu frá síðasta leik. Davíð Snær Jóhannsson sem kom frá Lecce í gær kemur beint í byrjunarliðið og Kristinn Freyr Sigurðsson kemur inn eftir að hafa tekið út leikbann. Þá kemur Finnur Orri Margeirsson inn eftir að hafa misst af síðasta leik vegna meiðsla.

Það vekur athygli að Vuk Oskar Dimitrijevic er ekki í leikmannahópi FH í dag. Logi Hrafn Róbertsson meiddist gegn Blikum og er því ekki með í dag. Þeir Oliver Heiðarsson og Baldur Logi Guðlaugsson taka sér sæti á bekknum.

Heimir Guðjónsson, þjálfari Vals, gerir enga breytingu á sínu liði. Sigurður Egill Lárusson er áfram utan hóps. Siggi hefur m.a. verið orðaður við skipti í FH.

Byrjunarlið FH:
1. Gunnar Nielsen (m)
2. Ástbjörn Þórðarson
4. Ólafur Guðmundsson
7. Steven Lennon
8. Kristinn Freyr Sigurðsson
9. Matthías Vilhjálmsson (f)
10. Björn Daníel Sverrisson
11. Davíð Snær Jóhannsson
16. Guðmundur Kristjánsson
20. Finnur Orri Margeirsson
23. Máni Austmann Hilmarsson

Byrjunarlið Vals:
1. Guy Smit (m)
2. Birkir Már Sævarsson
3. Jesper Juelsgård
5. Birkir Heimisson
6. Sebastian Hedlund
9. Patrick Pedersen
10. Aron Jóhannsson
12. Tryggvi Hrafn Haraldsson
14. Guðmundur Andri Tryggvason
15. Hólmar Örn Eyjólfsson (f)
22. Ágúst Eðvald Hlynsson
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner