Watkins orðaður við United - Bayern sýnir Díaz áhuga - Arsenal hefur rætt við Eze
   fös 06. maí 2022 12:53
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Dallas frá í hálft ár - Hugsa ekki um hversu mörg stig þeir þurfa
Bandaríkjamaðurinn Jesse Marsch, sem stýrir Leeds, ræddi við fjölmiðla fyrir leikinn gegn Arsenal.

Leeds er tveimur stigum fyrir ofan Everton í átjánda sætinu en Everton á leik til góða. „Ég veit ekki hvað við þurfum að fá mörg stig. Ég hugsa bara um einn leik í einu og núna er það Arsenal."

„ Við reynum að hugsa ekki um möguleikann á falli og einbeitum okkur að verkefninu. Ég veit að þið fjölmiðlamenn viljið tala um tilfinningar og slíkt en við ætlum ekki að ræða það."


Á fundinum var einnig greint frá því að Stuart Dallas verði frá í hálft ár hið minnsta.

„Hann fór í langa aðgerð, tók fimm og hálfan tíma. Niðurstaðan var jákvæð en mér er sagt að þetta verði allavega hálft ár í endurhæfingu."

Þá sagði Marsch frá því að Patrick Bamford myndi snúa aftur á æfingar í næstu viku eftir meiðsli.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 0 0 0 0 0 0 0 0
2 Aston Villa 0 0 0 0 0 0 0 0
3 Bournemouth 0 0 0 0 0 0 0 0
4 Brentford 0 0 0 0 0 0 0 0
5 Brighton 0 0 0 0 0 0 0 0
6 Burnley 0 0 0 0 0 0 0 0
7 Chelsea 0 0 0 0 0 0 0 0
8 Crystal Palace 0 0 0 0 0 0 0 0
9 Everton 0 0 0 0 0 0 0 0
10 Fulham 0 0 0 0 0 0 0 0
11 Leeds 0 0 0 0 0 0 0 0
12 Liverpool 0 0 0 0 0 0 0 0
13 Man City 0 0 0 0 0 0 0 0
14 Man Utd 0 0 0 0 0 0 0 0
15 Newcastle 0 0 0 0 0 0 0 0
16 Nott. Forest 0 0 0 0 0 0 0 0
17 Sunderland 0 0 0 0 0 0 0 0
18 Tottenham 0 0 0 0 0 0 0 0
18 Leicester 38 6 7 25 33 80 -47 25
19 West Ham 0 0 0 0 0 0 0 0
19 Ipswich Town 38 4 10 24 36 82 -46 22
20 Southampton 38 2 6 30 26 86 -60 12
20 Wolves 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner