Guðni Þór: Það er lítið á milli liðanna í fyrsta og tíunda sæti
Auglýsing

Guðni Þór, þjálfari HK.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðni Þór, þjálfari HK.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðni Þór Einarsson var að vonum sáttur með 1-3 sigurinn vð Fylki í kvöld. „Virkilega ánægjulegt að byrja mótið á sigri. Sérstaklega á þessum erfiða útivelli á móti góðu Fylkisliði. Mér fannst bara góður andi og við spiluðum leikinn mjög vel og áttum sigurinn skilið."
HK er spáð fjórða sæti í Lengjudeildinni í ár.
„Það leggst bara mjög vel í mig, í fyrra vorum við að berjast við fall þannig að eðlilega viljum við klifra upp töfluna. Fjórða sæti væri bara virkilega ásættanlegt".
„Við erum öll mjög spennt fyrir tímabilinu og þessi deild verður virkilega jöfn. Það er lítið á milli liðanna í fyrsta og tíunda sæti að mínu mati".
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.