Fotbolti.net
06.05.22 - 20:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Lengjudeildin: Woo á Willard í dramatískum sigri Þórs

Willard í leik með Víkingi Ólafsvík.

Willard í leik með Víkingi Ólafsvík.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Þór 1 - 0 Kórdrengir
1-0 Harley Bryn Willard ('88 )
Lestu um leikinn
Harley Willard, nýr leikmaður Þórs, kætti stuðningsmenn í Þorpinu með sigurmarki gegn Kórdrengjum í fyrstu umferð Lengjudeilar karla í kvöld.

Þetta var hörkuleikur eins og búast mátti við og var ekki mikið um opin marktækifæri.

Það var ekki fyrr en á 88. mínútu er ísinn var brotinn. „Glæsileg stungusending frá Jewook Woo á Willard sem skorar fram hjá Óskari," skrifaði Jóhann Þór Hólmgrímsson í beinni textalýsingu úr Boganum.

Tveir nýir leikmenn Þórs - Willard og Woo - sem sáu um að búa til markið sem skildi liðin að á endanum.

Lokatölur 1-0 og gríðarlega sterkur sigur Þórs staðreynd gegn sterkum andstæðingi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.