
Þorlákur Árnason þjálfari Þórs var ánægður með sigur sinna manna gegn Vestra í fyrsta leik liðanna í Lengjudeildinni á þessari leiktíð.
Lestu um leikinn: Þór 2 - 1 Vestri
„Planið var að fara í millisvæðin á þeirra þriggja manna vörn en svo skellti Davíð bara í fjögurra manna vörn í fyrsta skiptið í sögunni, það kom okkur gríðarlega á óvart en okkur grunaði það í upphituninni. Það er í fyrsta skipti að mér vitandi að Davíð spili fjögurra manna," sagði Láki.
Láka fannst leikmenn liðsins þurfa fá spark í rassinn eftir að hafa orðið manni fleiri eftir tæplega klukkutíma leik.
„Eftir að þeir missa manninn útaf fannst mér við slaka á. Mér fannst við byrja seinni hálfleikinn vel en svo fannst mér menn slaka á þegar þeir fá rauða spjaldið, þess vegna ákváðum við að henda í þrefalda skiptingu og reyna keyra þetta aðeins upp og mér fannst það virka nokkuð vel," sagði Láki.
Alexander Már Þorláksson fékk höfuðhögg í leiknum og var sendur upp á sjúkrahús í hálfleik.
„Það er ekki ástæða til að fara í myndatöku, hann fékk vægann heilahristing, vonandi ekki alvarlegt. Það er ein til tvær vikur sem þarf að gefa leikmönnum til að jafna sig, við leysum það bara á meðan," sagði Láki.